Heiðarsel - Foreldrafélag

Stjórn 2009-2010

Foreldrafélag er starfandi við leikskólann. Foreldrafélag Heiðarsels var stofnað vorið 1991. Allir foreldrar/forráðamenn barna á Heiðarseli verða sjálfkrafa félagar um leið og börn þeirra hefja dvöl í leikskólanum. Markmið félagsins er að efla tengsl milli foreldra/forráðamanna og starfsfólks leikskólans og stuðla að sem bestri samvinnu þessara aðila til að tryggja velferð barna á Heiðarseli. Foreldrafélagið er einnig hugsað sem skemmtifélag þar sem foreldrar/forráðamenn hittast með börnin utan leikskólans. Stjórnarfundir eru auglýstir með fyrirvara hverju sinni og eru þeir opnir öllum foreldrum/forráðamönnum. Fundirnir eru fremur óformlegir en því fleiri foreldrar sem mæta á fundina því fleiri hugmyndir koma fram. Aðalfundur er haldinn að hausti ár hvert. Í stjórn félagsins eru kosnir þrír fulltrúar frá hverri deild. Stjórnin kýs sér formann og gjaldkera á fyrsta stjórnarfundi og skal formaður sitja minnst ár í senn. Foreldrafélagið vill bjóða nýja foreldra/forráðamenn velkomna í félagið.  Við vonumst eftir virkri þátttöku ykkar til þess að gera gott félag betra. Undanfarin ár hefur félagið staðið fyrir ýmsum uppákomum. Það hefur m.a. skipulagt útivistardag, sveitaferð, heimsókn í hesthús, bíóferð, sundferð, leikhúsferð, jólaball, grímuball, myndlistarsýningu og íþróttadag svo eitthvað sé nefnt. Einnig hefur foreldrafélagið boðið upp á fyrirlestra fyrir foreldra og starfsfólk, ásamt því að styrkja leiksýningar á vegum leikskólans.  Foreldrafélagið hefur styrkt leikskólann til tækjakaupa og einnig hefur félagið selt boli, barmmerki og söngbækur til fjáröflunar. Foreldrafélagið er hagsmunafélag barna og foreldra/forráðamanna á Heiðarseli og eru því hagsmunir barna og foreldra ávallt hafðir í fyrirúmi.  Ef foreldrar hafa eitthvað til málanna að leggja er þeim velkomið að snúa sér til stjórnar félagsins. 

Jákvætt og traust samband milli foreldra og starfsfólks stuðlar að öryggiskennd og vellíðan barns.