Heiðarsel - Fundargerðir

Foreldrafélag Heiðarsels

Foreldrafélag Heiðarsels

Stjórnarfundur 10. maí 2011 á Heiðarseli

Mættar: Edda, Eygló, Danijela, Þórdís, Hrund, Elínborg og Halla fulltrúi leikskólans

Sveitaferðin 21. maí - Grjóteyri
Auglýsing vegna sveitaferðarinnar er komin upp og stjórnarmeðlimir munu taka við skráningum og greiðslu kl 15-16 á miðvikudaginn (Hrund og Þórdís). Biðja um nafnalista hjá leikskólanum (Halla ætlar að sjá um það). (Innsk hh 30/5 : um 80 voru skráðir en einhver afföll urðu)

Sumarhátíð 8. júní
Félagið mun venju samkvæmt styrkja skemmtiatriði á sumarhátíðinni - líklega um 30 þúsund krónur en ekki er búið að panta atriði (innsk hh 30/5 : íþróttaálfurinn og Solla Stirða koma, kosta 49 þús)

Útskriftarferð
Ekki búið að skipuleggja að fullu en félagið hefur komið að ferðinni t.d með stuðningi við mat (í fyrra borgaði félagið pitsur á langbest). (innsk hh 30/5 : farið var í fjöruferð í Sandgerði og borðað á Mamma Mia)

Páskaeggjaleitin
Hætt var við fyrirhugaða páskaeggjaleit vegna vondrar veðurspár en í staðinn var hún haldin á leikskólatíma og tókst vel. Börnin leituðu að lituðum steinum og fengu stimpla og að lokum egg.
Flíspeysur
Fyrirspurn frá foreldri barst um flíspeysur - ákveðið að kanna það nánar í haust.

Fleira ekki rætt og fundi slitið.
Hrund Hólm ritari

Foreldrafélag Heiðarsels

Stjórnarfundur 26. október 2010 á Heiðarseli

Mættar: Edda, Fjóla, Danijela, Eygló, Hrund, Þórdís, Elínborg og Halla fulltrúi leikskólans

Þúfan / gíróseðlar vegna félagsgjalds
Edda leggur fram uppkast að Þúfunni sem fyrirhugað er að gefa út á næstu dögum. Gíróseðlar vegna félagsgjalds (2500 kr, gjalddagi 1. nóv) hafa verið gefnir út og ákveðið er að dreifa þeim með Þúfunni þar sem nánari upplýsingar verða um gjaldið og hvernig það nýtist. Þúfan verður tilbúin á næstu dögum.

Jólaball
Fjóla ætlar að tala við Karen í tónlistarskólanum og athuga með Léttsveitina. Best væri að geta fengið hana annað hvort fyrsta sunnudag í aðventu (28. nóv) eða fyrstu helgina í desember. Rætt um að halda jólaballið í Heiðarskóla ekki síst þar sem hann er hverfisskólinn okkar. Eygló ætlar að tala við húsvörðinn og Edda athugar jafnframt með Holtaskóla þegar dagsetning liggur fyrir.

Jólagjafir frá foreldrafélaginu til barnanna, afhentar á jólaballinu
Eygló var búin að athuga með ýmislegt á netinu en fann ekkert sem er nógu sniðugt og ódýrt. Erfitt að finna gjöf sem hentar bæði 2ja og 5 ára börnum. Ákveðið að athuga hvort hægt sé að fá ódýrar bækur (Fjóla talar við forlagið). Erum að miða við 300 kr.

Jólaföndur (föndrað á leikskólanum, börnin taka svo með heim af jólaballinu)
Eygló leggur til að við kaupum ódýra ikea ramma sem hægt er að mála og skreyta og setja svo teiknaða mynd inní. Halla ætlar að bera þetta undir kennarana en nú þegar er ýmislegt á döfinni fram að jólum.

Þakkir frá leikskólanum
Fyrir hönd leikskólans þakkar Halla foreldrafélaginu fyrir gjöfina í tilefni af 20 ára afmæli leikskólans (dýna og boltar).

Íþróttadagurinn
Frekar dræm mæting var á íþróttadaginn og líklega var hann ekki nægilega vel auglýstur þó svo að auglýsingar hafi verið hengdar upp á miðvikudeginum fyrir. Sennilega þarf að setja miða í hólfin til að ná til allra. Rætt um að hafa aftur íþróttadag á vorönninni. Um að ræða skemmtilega stund sem ekki kostar neitt.

Heimasíðan
Rætt um að nota heimasíðuna betur, t.d. til að auglýsa viðburði sem eru á döfinni. Þó er óvíst hversu mikið heimasíðan er skoðuð. Hrund ætlar að senda Kollu myndir frá íþróttadeginum til að setja á netið.

Blátt áfram verkefnið
Leitin að peningunum heldur áfram. Edda setti sig í samband við foreldrafélag Garðasels og fékk nafn þeirrar sem sá um sjóðinn (Guðlaug Emma) og verður haft samband við hana til að fá botn í málið.

Næsti fundur
Stjórnin þarf að koma saman til að skipuleggja jólaballið og pakka inn gjöfunum þegar nær dregur ballinu.

Fleira ekki rætt og fundi slitið.
Hrund Hólm ritari

Aðalfundur
28. september 2010
Heiðarseli

Mættir; úr stjórn: Sigrún Gróa, Edda, Eygló, Gulla, Elínborg, Hrund; frá leikskólanum: Kolla, Halla, Lóa. Aðrir félagsmenn: 6.

. Edda setur fundinn og fer yfir verkefni síðasta vetrar (sjá fylgiskjal). Sigrún Gróa fer yfir rekstrarreikning (sjá fylgiskjal). Í byrjun síðasta vetrar átti félagið um 6000 krónur en nú er staðan 78.300. Ákveðið var að stilla fjárútlátum í hóf til að spara fyrir gjöf foreldrafélagsins til Heiðarsels í tilefni af 20 ára afmælinu 8. október nk.
. Sigrún Gróa hættir sem gjaldkeri og Gulla tekur við. Tveir félagsmenn bjóða sig fram sem meðstjórnendur, Þórdís Lúðvíksdóttir (thordis@visir.is) og Danijela Zivojinovic (tisma123@hotmail.com). Stjórnarfundir eru að jafnaði haldnir einu sinni í mánuði.
. Gíróseðlar verða sendir út (í heimabankann) í október með gjalddaga 1. nóvember. Miðar verða settir í hólf.
. Áætlað er að Þúfan komi út í nóvember.
. Á döfinni eru fastir liðir eins og íþróttadagurinn (verður líklega sunnudaginn 10. október nk.). Jólaballið verður svo í byrjun desember. Ekki hafa verið teknar ákvarðanir um fleiri viðburði enn.
. Kolla leikskólastjóri segir frá skemmdarverkum sem unnin eru reglulega á útisvæði og húsnæði leikskólans. Þar eru unglingar að verki og hefur þetta vandamál staðið lengi, bæði er rusli dreift, rennur hafa verið skemmdar margoft, bekkir og borð brotin og fánastöngin sveigð niður. Lögreglan hefur verið kölluð til þegar aðkoman hefur verið hvað verst. Nú er búið að læsa ruslatunnunum og festa þær niður. Óskað hefur verið eftir myndavélum og ljósastaurum. Rafmagnslínur eru fyrir í vellinum. Eitt sinn voru lágir staurar en stöðugt var verið að brjóta perur í þeim. Rætt um að skipuleggja foreldravakt. Ákveðið að foreldrafélagið skrifi grein í VF og starfsfólk leikskólans taki myndir sem hægt er að birta með.
. Kolla segir einnig frá því að lóðin sé eilífðarvandamál sem og skortur á bílastæðum. Æskilegt væri að endurskipuleggja lóðina auk þess sem það vantar leiktæki fyrir yngstu börnin, nú eru yngstu börnin yngri en þegar völlurinn var upphaflega byggður. Sandkassinn er óhentugur, of stór og laðar að sér ketti. Leikskólann vantar kattafælu (Hrund ætlar að athuga með slíkt).
. Fyrirspurn barst um morgunmatinn, í fyrra var verið að kanna hvort foreldrar gætu hugsað sér að morgunmatnum yrði sleppt. Foreldrar vildu það almennt ekki en ekki var alltaf samræmi á milli þess og hvort börnin borðuðu morgunmat á leikskólanum. Hugmyndir eru um að í stað morgunmatar væru ávextir (fjölbreytt úrval) á boðstólum kl 9-9.30 (börnin fá nú þegar ávaxtabita á morgnana). Þetta er liður í heilsustefnu leikskólans. Mjög mikið er lagt uppúr hollum mat, fiskur er oft á boðstólum og er Sigga matráður mjög séð í innkaupum og matargerð. Samráð er haft við hina heilsuleikskólana og næringarráðgjafa.

Fleira ekki gert og fundi slitið.
Hrund tók fundargerð.

Foreldrafélag Heiðarsels
Stjórnarfundur á Heiðarseli 9. September 2010
Mættar: Edda, Eygló, Sigrún Gróa, Fjóla, Hrund og Halla fulltrúi leikskólans.

Efni: Verkefni síðasta vetrar, aðalfundur ofl.
Verkefni foreldrafélagsins síðastliðinn vetur

1) Íþróttadagur, 2) fyrirlestur Gylfa Jóns (ásamt hinum leikskólunum), 3) jólaball, 4 ) jólaleikrit 5) Fjóla tröllastelpa kom í heimsókn í leikskólann 6) páskaeggjaleit, 7) bókagjöf, 8) bakkelsi fyrir starfsfólkið, 9) íþróttaálfur á sumarhátíðinni, 10) útskriftarferð (matur)

Heiðarsel 20 ára
Tuttugu ára afmæli Heiðarsels verður þann 8. október nk. Ekki er búið að ákveðið hvernig því verður fagnað. Foreldrafélagið mun gefa leikskólanum gjöf og tillögur hafa komið um pappírstætara og ferðageislaspilara. Edda mun athuga hvað slíkt kostar. Félagið á núna um 85.000 krónur.

Aðalfundur
Ákveðið að boða til aðalfundar þriðjudaginn 28. september n.k kl. 20. Hengja upp auglýsingu þann 20. sept. (Hrund sér um hana) og setja miða í hólfin daginn áður. Sigrún Gróa mun hætta sem gjaldkeri og Gulla hefur verið nefnd til að koma í hennar stað. Aðrir stjórnarmeðlimir halda áfram en það vantar 2-3 meðstjórnendur.  Ákveðið að stjórnin hittist fyrir fundinn. Fjóla kaupir kaffi og rúsínur.

Íþróttadagur
Eygló ætlar að fá upplýsingar um hvenær við getum fengið íþróttasal Heiðarskóla lánaðan fyrir íþróttadag. Rætt um hvort eigi að bjóða upp á svala eða ávexti. Líklega kallar það á þrif og auka vinnu fyrir stjórnina ef út í það er farið. Spurning þó að athuga hvort Nettó/Kaskó vilji styrkja okkur með Latabæjarvatni til að gefa krökkunum þegar "æfingunni" er lokið, þ.e. á leiðinni út úr húsinu.

Blátt áfram verkefnið
Sameiginlegur sjóður foreldrafélaga leikskólanna í Reykjanesbæ gaf börnum í árganginum 2005 bókina Mínir einkastaðir fyrir 2-3 árum. Ætlunin var að nota peninginn sem safnaðist (foreldrafélag Garðasels sá um sjóðinn) til að kaupa bækur einnig fyrir næstu árganga á eftir. Ekki hefur orðið úr því og ætlar Edda að athuga hvernig staðan er með sjóðinn og þá hvort við getum fengið okkar hluta í okkar vörslu.

Jólaball
Þurfum að vera tímanlega í að skipuleggja jólaball og panta léttsveitina. Annar í aðventu er 5. desember. Sama gildir um jólagjafir og jólaföndur/skraut sem krakkarnir gera í leikskólanum. Höfum augun opin fyrir sniðugum gjöfum (t.d. svuntur í rúmfatalagernum) sem kosta lítið. Hugsanlega hægt að tala við verslunarstjóra Rúmfatalagersins eða Megastore.  Reynum svo í samráði við leikskólakennarana að finna sniðugar skreytingar.

Fleira ekki gert og fundið slitið
(Hrund)

Fundur foreldrafélags Heiðarsels 20. janúar 2010

Mættar: Edda, Gulla, Fjóla, Elínborg, Eygló, Sigrún Gróa, Hrund og Halla fulltrúi leikskólans.
Frá foreldraráði: Guðrún (og Gulla). Kolbrún leikskólastjóri kom til að fara yfir niðurskurð.

Eftirfarandi mál voru rædd:

1) Niðurskurður. Kolbrún leikskólastjóri kom á fundinn til að segja frá hvernig niðurskurður í rekstri sveitarfélagsins mun koma niður á leikskólanum. Fram að þessu hefur leikskólinn yfirleitt fengið það sem til þarf til að sinna nauðsynlegu viðhaldi á leikskólanum. T.d. var lagður nýr gólfdúkur á Brekku í sumar.

Gjaldskrárhækkun gekk í gildi 1. febrúar, tímagjaldið hækkar um 200 kr og hádegismatur um 145 kr (sama verð og áður fyrir morgunmat og síðdegishressingu). Fyrir barn í 8,5 tíma vistun þýðir þetta hækkun úr ca. 25.500 í 27.500 fyrir fullt gjald. Leikskólinn ætlar að gera sitt besta til að gera ekki breytingar á matseðlinum og mun hagræða í innkaupum eins og hægt er. Sama gildir um önnur innkaup, útsjónarsemi er aðalatriðið.
 
Hjá sveitarfélaginu var gerð sú breyting að hvert barn á leikskólanum skuli hafa 7 m² (var 7,5 m²). Það þýðir fleiri börn og þ.a.l. fleira starfsfólk. Einhver laus pláss eru á öðrum leikskólum í bæjarfélaginu sem verða nýtt fyrir þau börn sem verða á biðlista.
 
Sumarlokun verður 5 vikur (í stað 4 vikna). Það hentar leikskólanum betur vegna orlofsdaga starfsfólks, það þarf minni afleysingu inn í skólana. Sumarlokun allra leikskólanna í bæjarfélaginu mun skarast í eina viku.
 
Hlutfall afleysingarstöðu minnkar um 60%. Mjög alvarlegt mál að þetta starfshlutfall skuli vera skert. Leikskólastjórar í Reykjanesbæ eru afar ósáttir við þessa ákvörðun. Það þýðir að ef forföll verða mikil þá þarf að senda börn heim úr leikskólanum. Gerð verður áætlun um hverja á að senda heim hverju sinni. Líklega verður ekki úr þessu fyrr en í haust í leikskólanum Heiðarseli.
 
Starfsmannafundir sem hafa fram að þessu verið haldnir utan vinnutíma verða nú haldnir í dagvinnu, þar sem öll yfirvinna verður tekin af í leikskólum. Þar af leiðandi fjölgar starfsdögum um einn og þá daga sem fundir verða opnar leikskólinn seinna, t.d. á hádegi. Með þessu móti fækkar fundum starfsfólks sem er mjög slæmt fyrir faglegt starf. Einnig mun þetta koma til með að skerða laun alls starfsfólks.

Rætt hefur verið um að þessar aðgerðir verði út þetta ár, en verði síðan endurskoðað.

Kolbrúnu þakkað fyrir.

Annað sem tekið var fyrir:

Foreldrar hafa tekið eftir því leikskólinn sé betur þrifinn, leikskólastjórinn upplýsti fundamenn um að hluti starfsfólks hefði tekið að sér þrif tímabundið í leikskólanum.

2) Fjármál. Hvernig hafa greiðslur félagsgjalda skilað sér? Þurfum að fá yfirlit yfir það, einnig vantar upplýsingar um hvernig jólaballið kom út. Sigrún mun koma þeim upplýsingum til stjórnar.
3) Á döfinni. Á vorin hefur foreldrafélagið staðið fyrir Möguleikhúsinu og sveitaferð (annað hvert ár, var í fyrra). Nú er ráðlegt að gera eitthvað sem kostar lítið, t.d. fara í fjöruferð, sleðaferð eða halda aftur íþróttadag (fengum ábendingu eftir síðasta íþróttadag um að ganga betur frá). Aðrir leikskólar hafa verið með páskaeggjaleit þegar páskar nálgast. Börnin leita þá að máluðum eggjum og fá súkkulaðiegg í skiptum fyrir þau. Foreldrafélagið hefur þá verið með pönnukökur ofl til sölu. Skoðum þetta (myndum láta málaða steina duga) þegar nær dregur páskum. Stjórnarmenn sammála um að ekki sé þörf á sérstökum viðburðum eða skemmtunum næstu vikurnar.

Fleira ekki rætt og fundi slitið.
Hrund Hólm ritari

Fundur foreldrafélags Heiðarsels 19. október 2009

Mættar: Edda, Gulla, Fjóla, Elínborg, Eygló, Sigrún Gróa, Hrund og Halla fulltrúi leikskólans.

Eftirfarandi mál voru rædd:

1) Íþróttadagur. Salurinn í Heiðarskóla er þéttbókaður en Eygló ætlar að athuga hvort hægt sé að komast að kl 14-16 laugard. eða sunnud. á komandi vikum.

2) Jólaballið. Sigrún ætlar að athuga með léttsveitina. Fyrsti sunnudagur í aðventu er 29. nóvember, erum að spá í þeirri helgi eða helginni á eftir. Varðandi jólagjafir þá er ætlunin að reyna að finna eitthvað í líkingu við í fyrra, t.d. bækur, spil eða jólaskraut. Fjóla athugar málið. Varðandi jólaföndur sem krakkarnir geta sótt á ballinu er hugmynd um að foreldrar útvegi sultukrukkur (eða barnamatskrukkur) fyrir krakkana að skreyta.

3) Félagsgjöld. Við höldum okkur við sömu upphæð og áður, 2500 kr á heimili (óháð fjölda barna á leikskólanum). Rætt um að sleppa því að senda gíróseðla og láta senda beint í heimabankann. Við höfum þó fram að þessu ekki þurft að borga fyrir gíróseðlana. Sigrún ætlar að tala við bankann og ganga frá þessu á næstu dögum. Gjalddagi 1. nóvember.

4) Fyrirlestur fyrir foreldra leikskólabarna. Á sameiginlega fundinum (með hinum foreldrafélögunum) var ákveðið að fá Gylfa Jón til að halda fyrirlestur um úlfatímann. Haldið í Kirkjulundi 3. nóvember kl. 20. Hrund sér um að búa til auglýsingu fyrir leikskólana.

5) Jólaleikrit. Foreldrafélagið hefur greitt fyrir jólaleikrit leikskólans. Munum fá upplýsingar frá leikskólanum um það síðar og kostnað, sjáum til hvort við getum greitt að fullu eða að hluta.

6) Netfangalisti. Það gæti verið gott að hafa netföng foreldra á Heiðarseli til að senda tilkynningar og auglýsingar. Netföngin eru til hjá leikskólanum en það þarf samþykki viðkomandi foreldra til að mega nota þau í þessum tilgangi. Spurning hvort hægt væri að ganga frá þessu í foreldraviðtölum sem eru á næsta leiti.

7) Bíóferð. Nú er byrjað að sýna Skellibjöllu í bíó. Eygló ætlar að athuga hvort við getum fengið einhvern "díl" eins og dæmi eru um að aðrir leikskólar hafa fengið, þ.e. tilboð (miði, popp og gos) fyrir leikskólabörnin á tilteknar sýningar. Það er þá ekki háð ákveðnum fjölda barna, þeir koma sem vilja. Athuga með næstu helgi.

8) Önnur mál
. Halla bendir á að leikskólann vanti alltaf föndurdót og þá má nota alls kyns verðlaust efni sem til fellur á heimilinu - mætti beina því til foreldra
. Edda fékk ábendingu um að leikskólarnir megi nota íþróttaakademíuna milli kl 8 og 14 á virkum dögum þar sem salurinn er ekki í notkun á þeim tíma.


Fleira ekki rætt og fundi slitið.
Hrund Hólm ritari

Fundur Foreldrafélags Heiðarsels 25. maí 2009

Mættar voru:  Lóa formaður, Sigrún Gróa gjaldkeri, Steinþóra Eir ritari, og meðstjórnendurnir: Soffía Inga, Dórý, Eygló, Edda Guðrún, Fjóla og Hrund Hólm.

Nokkur mál voru á dagskrá síðasta fundar vetrarins sem haldinn var á DUUS kaffihúsi. 
-Lóa stiklaði yfir það sem gert hefur verið í vetur sem er ansi margt þegar tekið hefur verið saman.
-Sumarhátíð leikskólans verður haldin um miðjan júní (fer eftir veðri).  Foreldrafélagið er búið að panta trúðana Patrek og Pálínu til að skemmta á sumarhátíðinni, kostnaður er
kr. 40.000.
-  Líkt og undanfarin ár verður listaverkasala en börnin hafa nú þegar búið til verk sem verða til sýnis og sölu á hátíðinni - kr. 500.- hvert listaverk. 
-7. júní er ferð leikskólans á Kardimommubæinn. 
-Lóa ræddi um verkefnið Blátt áfram en hún ætlar að óska eftir því við foreldrafélag Garðasels að úthluta þeim peningum sem eftir eru í sjóðnum til leikskólanna svo hægt sé að kaupa fleiri bækur fyrir nýja nemendur.
-Lóa ætlar að panta bakkelsi, sætt og smurt, fyrir 6 þús. hjá Sigurjóni bakara.  Dórý ætlar að sækja það 2. júní og mæta með óvæntan glaðning á kaffistofuna handa frábæru starfsfólki Heiðarsels.
 -Breyting verður á stjórn félagsins næsta haust en Soffía, Dórý og Steinþóra munu ekki gefa kost á sér til setu.  Edda Guðrún hefur samþykkt að taka að sér formennsku og Eygló, Fjóla, Hrund og Sigrún Gróa ætla að halda áfram í stjórn. 

Fleira ekki gert fundi slitið,
Steinþóra Eir ritari