2. desember 2009
Jólaball foreldrafélagsins
Jólaball foreldrafélags Heiðarsels verður laugardaginn 5. desember í sal Holtaskóla frá klukkan 14-16. Jólahljómsveit Tónlistarskólans mun leika fyrir dansi og síðan munu jólasveinarnir koma. Samkvæmt gamalli hefð eru foreldrar beðnir um að koma með veitingar á jólaballið en foreldrafélagði mun sjá um drykki. (gott væri að koma með tertuhnífa og spaða). Frítt er fyrir leikskólabörnin en foreldrar og aðrir gestir greiða 500.- krónur við innganginn. Vinsamlegast skráið ykkur á listann sem er á leikskólanum og hve mörg börn koma. Vonumst til að sjá sem flesta. Foreldrafélagið.
Til baka
|
|