Heiðarsel - Velkomin á heimasíðu Heiðarsels
2. desember 2009
Útskrift leikskólaliða

Síðastliðinn föstudag útskrifuðust fimm leiðbeinendur með mikla starfsreynslu í leikskólastarfi af leikskólabrú sem kennd er hjá Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum. Námið stóð frá febrúar 2008 til nóvember 2009. Þær sem luku námi á leikskólabrú eru: Ágústa Jóna Heiðdal, Sigrún Grétarsdóttir, Steingerður Hermannsdóttir, Sædís Ósk Guðmundsdóttir og Valgerður Harðardóttir. Við óskum þeim til hamingju með þennan frábæra áfanga.



Til baka