22. janúar 2010
Fiðrildagerð í leikskólum í þágu Unifem
Laugardaginn 23. janúar verður kynning á störfum Unifem á Íslandi sem beina sjónum sínum að málefnum kvenna og barna í þróunarlödum og stríðshrjáðum svæðum. Í tilefni þessarar kynningar föndruðu elstu börnin í leikskólum Reykjanesbæjar fiðrildi sem munu skreyta Kaffitár og verða til sýnis þar í eina til tvær vikur. Fiðrildaáhrifin í þessu samhengi vísa í þá kenningu og vænjasláttur örsmárra fiðrilda í einum heimshluta geti haft gríðarleg áhrif á veðurkerfi hinum megin á henttinum. Upplýsinar um Unifem má nálgast á vefsíðu þeirra unifem.is. Kveðja, leikskólastjóri.
Til baka
|
|