Samstarf heimilis og leikskóla hefst áður en barnið byrjar í leikskólanum. Að byrja í leikskóla er ný reynsla fyrir barnið og foreldra þess. Allt er framandi og ókunnugt og því er mikilvægt að vel sé staðið að aðlögun í upphafi. Hvernig til tekst í byrjun getur haft áhrif á alla leikskólagöngu barnsins.
Á aðlögunartíma er mikilvægt að foreldrar kynnist kennurum deildarinnar og því starfi sem fram fer í leikskólanum, segja má að foreldrar séu einnig í aðlögun um leið og barnið. Með því er lagður góður grunnur að samstarfi í framtíðinni. Við vinnum eftir ákveðinni áætlun en hafa ber í huga að þessi aðlögunartími getur aldrei staðist fyrir öll börn. Aðlögun fer eftir aldri og aðstæðum hvers barns fyrir sig og er alltaf samkomulagsatriði milli leikskólakennara og foreldra. Einn kennari sér um aðlögun barnsins ef hægt er að koma því við.