Heiðarsel - Fréttapistlar

Fréttir í apríl
Kæru foreldrar.
Apríl hófst með páskahátíðinni og undirbúningi hennar. Þetta er einnig síðasti mánuðurinn okkar í vinnustundum en þeim lýkur formlega 30.apríl. Vorfagnaður verður föstudaginn 20.apríl og þá höfum við náttfataball. Elstu nemendur á Bakka fara í tvær ferðir í Heiðarskóla í apríl; í íþróttatíma miðvikudaginn 11.apríl þar sem þau mega koma með íþróttaföt með sér og síðan fara allir í tölvuver þriðjudaginn 17.apríl. Þess má einnig geta að í samráði við Skólamat hefur Heiðarskóli boðið elstu nemendum í hádegismat mánudaginn 7.maí nk. Þar fáum við hamborgara að borða.
Kveðja frá kennurum á Bakka.

Öskudagur
Miðvikudaginn 22.febrúar er öskudagur. Þá mega nemendur koma í furðufötum í leikskólann og við sprellum þennan dag eins og okkur er lagið. Við sláum köttinn úr tunnunni og fáum vonandi eitthvað gott fyrir það :) Við minnum á að stríðsleikföng eru ekki í boði í leikskólanum.
Kveðja frá kennurum á Bakka.

Fréttir í febrúar
Kæru foreldrar.
Febrúar hófst með tannverndarviku sem var 29.jan-3.feb. Mánudagurinn 6. febrúar er dagur leikskólans. Þá sýndu nokkrir starfsmenn leikritið um Karíus og Baktus við mikinn fögnuð viðstaddra og var efnið vel tengt tannverndarvikunni. Heiðargleði í boði Brekkubarna verður föstudaginn 10.feb og hinir skemmtilegu dagar bollu- sprengi- og öskudagar verða 20.-22.feb. Bókadagur er föstudaginn 24. feb. Við minnum líka á okkar vikulega morgunsöng í sal kl. 9 á mánudögum, þá koma nemendur og kennarar saman í sal og syngja saman nokkur lög til að byrja vikuna vel. Einnig minnum við á skertan dag leikskólans, fimmtudag 9.febrúar en þá opnar leikskólinn kl. 10 vegna starfsmannafundar starfsfólks. Munið líka endilega að kíkja í kassa barna ykkar og kanna hvort að eitthvað vanti þar.
Kveðja frá kennurum á Bakka. 

Fréttir í janúar 2012
Árið fer af stað með snjó og tilheyrandi vetrarhörku eins og hægt er að búast við á Íslandi á þessum árstíma. Börnin una sér vel í snjónum og eru einnig ánægð með að skipulagt starf sé byrjað að nýju eftir jólafrí. Söngstund verður í sal föstudaginn 13. janúar og viku síðar, föstudaginn 20. verður haldið þorrablót í salnum fyrir nemendur og starfsfólk. Bókadagur er föstudaginn 27. janúar og þá mega börnin koma með bók að heiman. Þann dag er einnig appelsínugulur dagur. Elstu nemendur á Bakka fara í heimsóknir í Heiðarskóla fram á vor og eru nánari upplýsingar um þær ferðir á upplýsingatöflu fyrir framan deildina. Við viljum einnig nota tækifærið til að minna foreldra á að fara í skóhlífar þegar tíðin er slík og hún er þessa dagana. Börnin okkar ganga mikið berfætt um leikskólann og viljum við þess vegna koma í veg fyrir mikla bleytu og sand á gólfum hússins.
Kveðja frá kennurum á Bakka.

Gleðilegt ár!
Kennarar á Bakka óska foreldrum og börnum gleðilegs árs og vonum við að hið nýja ári færi ykkur öllum gleði og frið. Við hefjum nýja árið með rólegheitum og kveðjum jólin á þrettándanum, 6. janúar, með því að hafa hattaball í salnum þar sem við dönsum frá okkur jólin. Börnin mega koma með höfuðfat að heiman.
Kveðja frá kennurum á Bakka.

Jólakveðja
Við óskum foreldrum og börnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum um leið fyrir líðandi ár og vonumst áfram eftir góðu samstarfi.
Kveðja frá kennurum á Bakka.

Fréttir í desember 2011
Desember er runninn upp með snjó og eftirvæntingu í bland. Við ætlum að bjóða foreldrum á jólaskemmtun til okkar föstudaginn 9.desember þar sem elstu nemendur á Bakka sýna helgileikinn og yngri börnin syngja vel valin lög fyrir gestina. Á eftir verður boðið upp á piparkökur og kaffi og kakó. Við vonumst til að sjá sem flesta og hlökkum til að fá að eiga með ykkur notalega stund á aðventunni.
Við minnum á að piparkökuhúsið sem elstu börnin gerðu fyrir Icelandair Hotel í Keflavík er til sýnis í listasalnum í Kjarna (á móti bókasafninu). Þeim er síðan boðið á sýningu þangað fimmtudaginn 15. desember kl. 10. Þar verður einnig boðið upp á piparkökur.

Lúlli löggubangsi og piparkökuhúsa-gerð
Lúlli löggubangsi og Krissi lögreglumaður komu til okkar föstudaginn 11.11 og sögðu okkur frá því sem þarf að varast í umferðinni og helstu reglum sem þar gilda. Þeir enduðu á því að gefa okkur lögrelgustimpil á hendina og afhentu öllum börnum endurskinsmerki og límmiða af Lúlla. Vonandi koma endurskinsmerkin að góðum notum.
Elstu nemendur á Bakka ætla að taka þátt í piparkökuhúsaleik sem Icelandair Hotel í Keflavík stendur fyrir á aðventunni. Börnin búa til eitt hús saman og síðan verður það til sýnis í göngugötunni við hótelið frá 23.nóvember.

Fréttir í nóvember 2011
Kæru foreldrar.
Dagur íslenskrar tungu er miðvikudag 16.nóvember og þá fara elstu börnin í Heiðarskóla að syngja fyrir nemendur í fyrsta bekk. Við erum að byrja að æfa okkur fyrir Heiðargleði sem verður föstudag 18.nóv í okkar umsjón. Í nóvember bökum við líka piparkökur og förum að hefja undirbúning fyrir jólin.
Endilega munið að kíkja í fatakassa barna ykkar til að fylgjast með hvort þurfi að fylla á.
Kveðja frá kennurum á Bakka

Fréttir í október 2011
Kæru foreldrar.
Nú eru vinnustundir komnar á fullt skrið og gaman að sjá hvað börnin eru áhugasöm um það efni sem við notum. Kynning á námsefni elstu barna var haldin 5.október kl. 13:15 og þökkum við kærlega fyrir góða mætingu og áhugasama foreldra. Við leggjum metnað okkar í að börnunum líði vel í vinnustundum og hafi gaman af námsefninu. Heiðarsel á 21 árs afmæli laugardaginn 8.október og í tilefni af því munum við halda uppá afmæli skólans á föstudeginum 7.okt. Þá fara allir nemendur í þrautabraut um skólann og syngja auðvitað afmælissönginn fyrir leikskólann sinn. Þriðjudaginn 11.okt verður leikskólinn lokaður vegna skipulagsdags starfsfólks. Söngstund verður í sal föstudaginn 21.okt og munum við æfa nokkra söngva í tilefni þess. Föstudaginn 28.okt verður bókadagur og mega börnin koma með bók að heiman eins og áður. Foreldraviðtöl hefjast í lok mánaðar og verða nánar auglýst síðar.
Kveðja frá kennurum á Bakka.

Fréttir í september 2011
Kæru foreldrar.
Við viljum bjóða ykkur velkomin aftur eftir sumarfrí og hlökkum til að starfa með ykkur og börnum ykkar í vetur.  Nýr starfskraftur, María Niznianska, er byrjuð á deildinni. Hún er grunnskólakennari og bjóðum við hana velkomna til liðs við okkur.  Að auki er Halldóra Björk leikskólakennari komin aftur til starfa eftir barnseignarleyfi. Hún vinnur hjá okkur fyrir hádegi á mánu-, miðviku- og föstudögum. María Guðmundsdóttir leikskóla- og tónlistarkennari vinnur hjá okkur á þriðju- og fimmtudögum fyrir hádegi. Við erum byrjuð að fara með elstu nemendur deildarinnar í vettvangsferðir í tengslum við bókina okkar um Gogga og Valla. Stefnt er að því að þeim ferðum verði lokið 9. september en þá hefst önnur vinna í tengslum við ferðirnar. Börnin teikna eða mála mynd af minnismerkjunum og búa til sína eigin bók.  Yngri nemendur á Bakka munu einnig fara í vettvangsferðir og er einnig stefnt að því að þeim ferðum verði lokið 9. september.
Starfsmannafundur starfsfólks Heiðarsels verður fimmtudaginn 8. september og opnar því leikskólinn kl. 10 þennan dag.  Ávaxtastund er fyrir öll börn þegar þau koma í leikskólann. Vinnustundir, hreyfing og annað skipulagt starf byrjar mánudaginn 12. september.  Bókadagur verður föstudaginn 16. september og mega þá börnin koma með bók að heiman. Haustfagnaður verður í sal skólans föstudaginn 30. sept.
Kveðja frá kennurum á Bakka.

Fréttir í maí 2011
Kæru foreldrar:
Við óskum ykkur gleðilegs sumars og þökkum fyrir veturinn.  Í maí ætlum við að fara á Listahátíð barna, við förum miðvikudaginn 4.maí kl. 13:30 og bjóðum foreldrum, öfum, ömmum og systkinum til að vera með okkur. Leikskólinn verður lokaður til kl. 10 miðvikudaginn 11. maí vegna starfsmannafundar starfsfólks. Í maí ætlum við að hafa íþróttaviku í leikskólanum, frá 10.maí til 19.maí. Við munum fara í ýmsa leiki og uppákomur sem tengjast íþróttum og hreyfingu. Að venju verðum við meira úti við eftir því sem veður leyfir.

Fréttir í apríl 2011
Kæru foreldrar.
Leikskólinn verður lokaður vegna skipulagsdags starfsfólks fimmtudaginn 7.apríl 2011. Vorfagnaður verður í sal föstudaginn 15.apríl og mega börnin koma með náttföt þennan dag. Náttfataball verður í salnum. Listahátíð barna verður sett fyrir páska og verður það nánar auglýst síðar.  Eftir páska hefjast foreldraviðtöl og munum við senda foreldrum upplýsingar um tímasetningu þegar nær dregur.
Kveðja frá kennurum á Bakka.

Fréttir í mars 2011
Kæru foreldrar:
Í mars er ýmislegt um að vera. Miðvikudaginn 2. mars er skertur dagur í leikskólanum, þá opnum við kl. 10 vegna starfsmannafundar leikskólans. Föstudaginn 4. mars er söngstund í sal. Vikuna 7. - 9. mars eru bollu-, sprengi- og öskudagur.  Á bolludag er boðið upp á bollur í síðdegishressingu og á sprengidag er boðið upp á saltkjöt og baunir í hádegismat. Á öskudag mega börnin mæta í furðufötum eða búningum og munum við slá köttinn úr tunnunni eins og oft áður. Þennan dag er frjálsara en aðra daga og börnin mega fara inn á aðrar deildar til að sýna sig og sjá aðra.  Föstudag 25. mars er Heiðargleði í boði Brekkubarna. Þann dag er einnig bókadagur.

Konukaffi
Við bjóðum ömmum og mömmum í konukaffi mánudaginn 21. febrúar (daginn eftir konudag).  VIð munum bjóða upp á nýbakað bakkelsi og verður leikskólinn opinn frá kl. 14:00 til 15:30.  Hlökkun til að sjá sem flestar konur.
Kveðja frá kennurum á Bakka.

Fréttir í febrúar 2011
Kæru foreldrar.
Fyrsta vika febrúarmánaðar er helguð tannvernd eins og síðustu ár. Þetta ár er áhersla lögð á glerung tannanna. Við fáum gesti úr Heiðarskóla þriðjudaginn 1.febrúar, það eru nemendur úr 4.bekk sem spila fyrir okkur á hljóðfæri og heimsækja skólann. Mörg af börnunum eru fyrrverandi nemendur okkar. Í tilefni af degi leikskólans, 6.febrúar, verður haldið upp á hann í leikskólanum föstudaginn 4. feb. Elstu nemendur skólans fara í íþróttahús Heiðarskóla og aðrir nemendur fara í þrautabraut um allan leikskólann. Sjá nánar auglýst á upplýsingatöflu við deildina. Leikskólinn verður lokaður vegna skipulagsdags fimmtudaginn 10. febrúar. Föstudaginn 11. feb bjóða Hólsbörn á Heiðargleði í salnum. Bókadagur er föstudaginn 25. febrúar og þann dag er einnig appelsínugulur litadagur. Við munum bjóða ömmum og mömmum í konukaffi í febrúar og verður það nánar auglýst síðar.
Kveðja frá kennurum á Bakka.

Fréttir í janúar 2011
Kennarar á Bakka óska ykkur öllum gleðilegs árs með kærri þökk fyrir það liðna.  Við kvöddum jólin á þrettándanum með hattaballi í sal þar sem allir voru með höfuðföt að venju.  Í janúar fara elstu börn skólans í heimsóknir í Heiðarskóla og eru þær heimsóknir auglýstar á upplýsingatöflu við Bakka.  Söngstund verður í sal föstudaginn 14. janúar og sem fyrr hefjum við vikuna á hverjum mánudagsmorgni kl. 9 með stuttri söngstund í salnum.  Við bjóðum í bóndakaffi föstudaginn 21. janúar, á bóndadaginn, og þá bjóðum við pöbbum og öfum upp á að smakka hjá okkur þorramat kl. 8 - 9:30 þennan dag. Að lokum minnum við á bókadag sem verður föstudaginn 28. janúar.
Kveðja frá kennurum á Bakka