Heiðarsel - Fréttapistlar

Fréttir í mars.
Í mars er þetta helst: Söngstund í sal 2.mars kl.10:00. Heiðargleði í boði Hóls er 23.mars, þessi dagur er líka bókadagur  þá mega nemendur koma með bækur að heiman.Skipulagsdagur er 26.mars þá er leikskólinn lokaður.
Kveðja frá kennurum á Brekku.

Fréttir í febrúar.
Febrúarmánuður hófst á tannverndarviku sem stóð frá 30.janúar til 3.febrúar. Dagur leikskólans var 6.febrúar en þá sýndu nokkrir kennarar skólans leikrit um Karíus og Baktus við mikinn fögunuð nemenda. Nemendur á Brekku buðu til heiðargleði þann 10.febrúar. Krakkarnir sungu nokkur lög og fóru með þulu síðan var öllum boðið upp í  dans.Miðvikudaginn 22.febrúar er öskudagurinn þá mega nemendur koma í búningum eða furðufötum við munum svo fara í salinn og slá köttinn úr tunnunni. Bókadagur er 24.febrúar þá mega allir koma með bók að heiman.Gott væri að kíkja í fatakassana og yfirfara.
Kveðja frá kennurum á Brekku.

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
Í janúar er þetta helst: Við ætlum að kveðja jólin með hattaballi í sal föstudaginn 6.janúar kl.10:00. Starfsmannafundur er þann 11.janúar, þá opnar leikskólinn kl. 10:00. Söngstund verður í sal þann 13.janúar . Þorrablót fyrir nemendur og kennara verður föstudaginn 20.janúar. Appelsínugulur litadagur og bókadagur verður 27.janúar.
Kveðja frá kennurum á Brekku.

Kæru foreldrar og aðrir gestir.
Takk fyrir notalega og skemmtilega stund sem við áttum saman þann 7.desember.
Jólakveðja
kennarar á Brekku.

Fréttir í desmeber.
Heil og sæl, í desember er þetta helst: 7.desember er jólaskemmtun fyrir nemendur og foreldra inn á Brekku, við ætlum að eiga notalega stund, syngja saman og snæða piparkökur og drekka kakó. 11.desember fer skórinn út í glugga, 16.desember er rauður dagur, allir mega koma í einhverju rauðu eða með rauðan fylgihlut. Þann 16.desember eru líka litlu jólin okkar þá dansa nemendur og kennarar saman í salnum, elstu nemendur skólans sýna okkur helgileik og svo borðum við saman hátíðarmálsverð.
Kær jólakveðja frá kennurum á Brekku.

Fréttir í nóverber.
Kæru foreldrar , við þökkum kærlega fyrir góða mætingu í foreldraviðtölin. Í nóvember er þetta helst: 11.nóvember ætlar Lúlli löggubangsi að kíkja í heimsókn kl.10:00, 14.nóvember ætlum við að byrja að syngja jólalögin, 16.nóvember er dagur íslenskrar tungu , 18.nóvember er Heiðargleði í sal kl. 10:00,  þetta er líka blár dagur , 22.nóvember er skipulagsdagur, þá er skólinn lokaður og 25.nóvember er bókadagur og  piparkökubakstur (gott að koma með svuntu ef börnin eiga) .
Kær kveðja frá kennurum á Brekku.

 

Fréttir í október.
Heiðarsel á 21.árs afmæli 8.október. Við ætlum að halda upp á daginn 7.október  með því að  bjóða nemendum í þrautabraut um skólann.  11.október er leikskólinn lokaður vegna skipulagsdags starfsmanna.  21.október er söngstund í sal kl. 10:00 .  28.október er bókadagur, þá mega nemendur koma með bækur að heiman. Foreldraviðtöl verða í lok mánaðarins. Þau verða auglýst síðar.
Kveðja frá kennurum á Brekku.

Fréttaskot.
Kæru foreldrar, vinsamlegast hafið nemendur í afklipptum sokkabuxum eða gammosíum á þriðjudögum og fimmtudögum vega hreyfingar.
kveðja
kennarar á Brekku.

Fréttir í september 2011.
Kæru foreldrar.
Velkomnir aftur eftir sumarfrí. Nýr starfsmaður ,Elísabet Hall leikskólaliði, er byrjuð að vinna á Brekku og bjóðum við hana velkomna. Vinnutími hennar er frá 8:00-16:00. Starfsmannafundur verður  8.september  frá kl: 8:00-10:00 og opnar því leikskólinn kl:10:00 fyrir börnin.  Boðið verður upp á ávexti  við opnun. Skipulagt starf ,vinnustundir hreyfing  tónlist o.fl., byrjar 12.september. Í skipulöguð starfi er börnunum skipt í litla hópa og fylgir sami kennarar hverjum hóp út veturinn.Bókadagur er 16.september, þá mega börnin koma með bækur að heiman. Haustfagnaður í sal verður 30.september.
Kveðja frá kennurum á Brekku.