Fréttir í apríl
Kæru foreldrar,
Við óskum nemendum og foreldrum þeirra gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn. Vorfagnaður verður föstudaginn 20. apríl, þá er náttfataball í sal f.h.og nemendur mega koma í eða með náttföt í leikskólann. Föstudaginn 27. apríl er brúnn litadagur á Heiðarseli, þá hvetjum við nemendur og starfsfólk til að mæta í brúnum fötum og/eða með brúna fylgihluti. Foreldraviðtöl verða á Hóli í lok apríl og byrjun maí. Vetrarstarfi lýkur 30. apríl og sumarönn hefst 2.maí.
Kær kveðja,
Kennarar á Hóli.
Fréttir í mars
Kæru foreldrar
Föstudaginn 9. mars er hvítur litadagur á Heiðarseli. Þá hvetjum við nemendur og starfsfólk til að mæta í hvítum fötum og/eða með hvíta fylgihluti. Föstudaginn 23. mars verður Heiðargleði í sal í boði Hóls. Einnig er bókadagur þennan dag, þá mega nemendur koma með bók að heiman í leikskólann. Börn fædd árið 2007 eru að læra sérhljóðana í vinnustundum, í mars tökum við Íí, Oo, Óó og Uu. Einnig eru öll börnin að vinna með samheiti algengra orða og samsett orð. Mánudaginn 26. mars er skipulagsdagur, þá er leikskólinn lokaður.
Fréttir í febrúar
Kæru foreldrar
Vikuna 30.janúar til 3. febrúar var tannverndarvika í skólum landsins og var þema vikunnar tengt tannvernd. Mánudaginn 6. febrúar, á degi leikskólans, enduðum við þemað með leikriti um Karíus og Baktus í flutningi Kennara, við mikinn fögnuð nemenda. Bókakoffortið er á Hóli til 10. febrúar og þá fer það á Bakka. Fimmtudaginn 9. febrúar verður starfsmannafundur frá kl. 08: 00 - 10:00. leikskólinn opnar kl. 10:00. Föstudaginn 10. febrúar verður Heiðargleði í sal kl:10:00 í boði Brekku. Miðvikudaginn 22. febrúar er öskudagur, þá mega nemendur koma í búningum eða furðufötum í leikskólann. Föstudaginn 24. er bókadagur, þá mega nemendur koma með bók að heiman. Tinna Björk, nemi frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands, verður í vettvangsnámi frá 13. febrúar til 16.mars á Hóli. Börn fædd 2007 á Hóli eru að byrja að æfa sig að skrifa stafina og við förum eftir röðinni í Lubbi finnur málbein. Í gær lærðu þau Bb og í þessum mánuði munu þau læra Nn, Dd og Íí/Ýý.
Kær kveðja
Kennarar Hóli.
Fréttir í janúar
Kæru foreldrar
Við óskum foreldrum og fjölskyldum þeirra gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir það gamla. Föstudaginn 6. janúar verður hattaball í salnum kl. 10:00. Nemendur mega koma með hatta eða höfuðfat í leikskólann. Miðvikudaginn 11. janúar verður starfsmannafundur frá kl. 08:00 - 10:00. leikskólinn opnar kl 10:00. Föstudaginn 13. desember verður söngstund í sal. Föstudaginn 20. janúar ætlum við að vera með þorrablót í sal kl. 10:00 fyrir nemendur og kennara. Föstudaginn 27 janúar. verður appelsínugulur litadagur á Heiðarseli. Þá hvetjum við nemendur og starfsfólk til að mæta í appelsínugulum fötum og /eða með appelsínugula fylgihluti. Einnig er bókadagur þennan dag, þá mega nemendur koma með bók að heiman í leikskólann.
Kær kveðja
Kennarar á Hóli.
Fréttir í desember
Kæru foreldrar
Laugardaginn 03. desember verður jólaball foreldrafélagsins í Holtaskóla kl.14:00.
Fimmtudaginn 8. desember ætla nemendur að bjóða foreldrum á jólaskemmtun í sal kl. 14:00. Þá ætlum við að syngja nokkur jólalög og borða piparkökur sem nemendur bökuðu og skreyttu, systkini eru velkomin. Miðvikudaginn 14. desember fara nemendur fæddir 2007 í heimsókn í Keflavíkurkirkju, lagt verður af stað um kl. 09:30.
Föstudaginn 16. desember ætla nemendur og kennarar leikskólans að halda litlu jólin í sal leikskólans kl. 10:00. Þar verður gengið í kringum jólatérð og jólasöngvar sungnir og í hádeginu verður boðið upp á jólamat. Einnig ætlum við að vera með rauðan dag þennan dag, þá mega allir koma í einhverju rauðu eða með rauðan fylgihlut. Jólakveðja kennarar Hóls.
Fréttir í nóvember
Kæru foreldrar
Lúlli löggubangsi kemur í heimsókn föstudaginn 11. nóvember kl. 10:00. Mánudaginn 14. nóvember ætlum við að byrja að syngja jólalögin. Föstudaginn 18. nóvember er Heiðargleði í sal kl.10:00 í boði Bakka. Einnig verður blár dagur þann dag. Þriðjudaginn 22. nóvember er skipulagsdagur, þá er leikskólinn lokaður. Fimmtudaginn 24. nóvember ætlum við að baka piparkökur fyrir hádegi. Föstudaginn 25. nóvember er bókadagur.
Kær kveðja
Kennarar Hóls.
Fréttir í október
Kæru foreldrar
Heiðarsel á afmæli 8. október. Í tilefni dagsins ætlum við að gera okkur glaðan dag föstudaginn 7. október með þrautabraut í sal og á göngum skólans. Skipulagsdagur verður þriðjudaginn 11. október, en þá verður leikskólinn lokaður. Söngstund verður í sal föstudaginn 21. október. Bókadagur verður föstudaginn 28. október
Kær kveðja
Kennarar Hóls.
Fréttir í september
Kæru foreldra
Vinnustundir og annað skipulagt starf hefst mánudaginn 12. september. Hreyfing verður á mánudögum og miðvikudögum, gott væri fyrir nemendur að koma í afklipptum sokkabuxum eða gammosíum þessa daga. Mikilvægt er að merkja allan fatnað nemenda. Fimmtudaginn 8. september verður starfsmannafundur frá kl: 08:00 - 10:00, leikskólinn opnar kl:10:00. Föstudaginn 16. september er bókadagur. Haustfagnaður verður föstudaginn 30. september.
Kær kveðja
Kennarar Hóls.
Fréttir í júní
Kæru nemendur og foreldrar hafið það sem allra best í sumarfríinu, við hlökkum til að sjá ykkur aftur eftir frí. Leikskólinn verður lokaður vegna sumarleyfa 14. júní til 19. júlí .
Nemendur mæta aftur í leikskólann þriðjudaginn 19. júlí.
Kær kveðja
Kennarar Hóls.
Fréttir í maí
Kæru foreldrar
Við óskum nemendum og foreldrum þeirra gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn. Í maí verða íþróttavikur frá 10. maí til 19. maí en þá förum við í ýmsa leiki og gönguferðir. Nemendur fæddir árið 2006 munu fara í kartöflugarðinn næstu daga og setja niður kartöflur.
Kær kveðja
Kennarar Hóls.
Fréttir í apríl
Kæru foreldrar
Fimmtudaginn 7. apríl verður leikskólinn lokaður vegna skipulagsdags kennara. Föstudaginn 15. apríl verður vorfagnaður í sal, þá ætlum við að hafa náttfataball og hvetjum við nemendur og starfsfólk til að mæta í náttfötum.
Kær kveðja
Kennarar Hóls.
Föstudaginn 1. apríl verður fjólublár litadagur á Heiðarseli. Þá hvetjum við börn og starfsfólk til að mæta í fjólubláum fötum og/ eða með fjólugláa fylgihluti
(spennu, belti arband o.s.frv.)
Fréttir í mars
Kæru foreldrar
Föstudaginn 4. mars er söngstund í sal. Miðvikudaginn 9. mars er öskudagur þá ætlum við að hafa gaman og slá köttinn úr tunnunni og nemendur mega koma í búningum eða furðufötum.
Föstudaginn 25. mars verður Heiðargleði í boði Brekku.
Kær kveðja
Kennarar Hóls
Fréttir í febrúar
Kæru foreldrar
Fyrsta vika febrúarmánaðar ár hvert er helguð tannvernd. 6. febrúar er dagur leikskólans, við ætlum að gera okkur glaðan dag á Heiðarseli föstudaginn 4. febrúar. Sett verður upp þrautabraut um allan leikskólann. Börnin mega koma með íþróttafatnað/leikfimiföt. Nemendur fæddir 2007 fara kl: 10:15-10:45 og nemendur fæddir 2006 fara kl:10:50-11:20.
10. febrúar er skipulagsdagur leikskólans, þá er leikskólinn lokaður. Föstudaginn 11. febrúar verður Heiðargleði í sal kl: 10:00 í boði Hóls. Í tilefni konudagsins verður konukaffi mánudaginn 21. febrúar frá klukkan 14:00-15:30. 25. febrúar er bókadagur, þá mega nemendur koma með bók að heiman.
Kær kveðja, kennarar Hóls.
Bóndakaffi föstudaginn 21. janúar þá verður opið hús frá klukkan 8:00-9:30 þar sem pöbbum og öfum er boðið í morgunmat og smá smakk á þorramat.
Kveðja kennarar Hóls.
Fréttir í janúar
Kæru foreldrar
Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir það gamla. Fimmtudaginn 6. janúar verður haldið hattaball í salnum kl. 10:00. Nemendur mega koma með hatta eða höfuðföt í leikskólann. Föstudaginn 14. janúar verður söngstund í sal. Föstudaginn 21. janúar verður haldið þorrablót fyrir nemendur í salnum kl. 10:00. Föstudaginn 28.janúar er bókadagur, þá mega nemendur koma með bók að heiman í leikskólann.
Kær kveðja, kennarar Hóls.
Fréttir í desember
Kæru foreldrar
Fimmtudaginn 9. desember ætla nemendur að bjóða foreldrum á jólaskemmtun kl. 10:00, þá ætlum við að syngja nokkur jólalög og borða piparkökur sem nemendur bökuðu og skreyttu, systkini velkomin. Þriðjudaginn 14. desember fara nemendur fæddir 2006 í heimsókn í Keflavíkurkirkju, lagt verður af stað um kl. 09:30. Fimmtudaginn 16. desember verða litlu jólin, þá göngum við í kringum jólatré og syngjum saman. Starfsmenn verða með leikritið Snuðra og Tuðra baka piparkökur og í hádeginu verður boðið upp á jólamat. Einnig ætlum við að vera með rauðan dag þennan dag.
Jólakveðja, kennarar Hóls.
Fréttir í nóvember
Kæru foreldrar
Heiðargleði verður föstudaginn 19. nóvember í boði Bakka. Skipulagsdagur verður mánudaginn 22. nóvember, þá verður leikskólinn lokaður. Þriðjudaginn 23. nóvember ætlum við að byrja að syngja jólalögin. Miðvikudaginn 24. nóvember verður bökunardagur á Hóli, þá mega nemendur koma með svuntu að heiman ef þau vilja.
Kær kveðja, kennarar Hóls.
Oddgeir ljósmyndari kemur til okkar föstudaginn 29. október kl. 9:00 og tekur bæði hóp-og einstaklingsmyndir af börnunum. Foreldrar geta síðar pantað myndir til að kaupa.
Foreldraviðtölin verða 27. og 29. okt. og 4. nóvember.
Fréttir í október
Kæru foreldrar
Heiða Mjöll nemi frá Háskóla Íslands Menntavísindasviði verður hjá okkur af og til í vetur. Bókakoffortið er á Hól til 22. október.
Heiðarsel verður 20 ára 8. október, þá verður opið hús frá kl. 14:00 - 15:30 og við bjóðum alla velkomna.
Skipulagsdagur verður fimmtudaginn 14. október en þá er leikskólinn lokaður. Söngstund verður í sal 22. október.
Bókadagur verður 29. október.
Kær kveðja, kennarar Hóls.
Fréttir í september
Kæru foreldrar
Vetrarstarfið hófst 13. september, með vinnustundum, hreyfingu og öðru skipulögðu starfi. Föstudaginn 17. september er bókadagur og einnig gulur dagur í leikskólanum, þá mega nemendur og kennarar koma í einhverju gulu í leikskólann. Haustfagnaður verður föstudaginn 24. september.
Kær kveðja, kennarar Hóls.
Fréttir í júní
Kæru foreldrar
Sumarhátíð verður miðvikudaginn 16. júní, við munum byrja daginn á því að fá Krakkahesta í heimsókn um morguninn og allir sem vilja fá að fara á hestbak. Eftir hádegi kl. 13:30 - 15:00. eru foreldrar og systkini velkomin til okkar og þá kemur Íþróttaálfurinn í heimsókn. Boðið verður upp á græmetis- og ávaxtahlaðborð.
Kær kveðja, kennarar Hóls.
Fréttir í maí
Kæru foreldrar
Hin árlega listasýning leikskólanna er hafin í Bókasafni Reykjanesbæjar. Nemendur Heiðarsels sýna verk sín 3.-17. maí. Leikskólinn verður lokaður vegna skipulagsdaga miðvikudaginn 12. maí og föstudaginn 14. maí. Íþróttavikur verða 18. - 28. maí, þá verður farið í þrautabrautir og ýmsa leiki á útisvæðinu. Einnig verður farið í gönguferðir um nánasta umhverfi leikskólans.
Kær kveðja, kennarar Hóls.