Heiðarsel - Elstubarna verkefni

Verkefni fyrir elstu börnin

Elstu börnin hafa mikla þörf fyrir að takast á við verkefni sem reyna á færni bæði andlega og líkamlega.  Sérstök áhersla er lögð á að þetta eru leikskólaverkefni og að hugmyndafræði og starfsaðferðir leikskóla eru lagðar til grundvallar.  Með ýmsum krefjandi verkefnum læra þau að fullvinna verk sín, þjálfa einbeitingu, færni og úthald. 
Á Heiðarseli byrja verkefni elstu barna í september og eru fjóra daga vikunnar í vinnustundum.  Þá vinnum við með lífsleikni, markvissa málörvun, Ótrúleg eru ævintýrin, sögugrunn, hreyfingu og vettvangsferðir.

Markmiðið með þessum stundum er að:

  • Brúa bilið milli leik-og grunnskóla
  • Að stuðla að vellíðan og öryggi barnsins við að flytjast af fyrsta skólastiginu yfir á það næsta
  • Að mynda samfelldni í námi barnsins
  • Að barnið upplifi grunnskólann sem eðlilegt framhald leikskólans

 Farið er í útskriftarferð á hverju vori með öll elstu börnin.