Á bjargi byggði
Á bjargi byggði hygginn maður hús,
á bjargi byggði hygginn maður hús,
á bjargi byggði hygginn maður hús
og þá kom steypiregn.
Og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx,
og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx,
og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx
og húsið á bjargi stóð fast.
Á sandi byggði heimskur maður hús,
á sandi byggði heimskur maður hús,
á sandi byggði heimskur maður hús
og þá kom steypiregn.
Og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx,
og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx,
og þá kom steypiregn og vatnið óx og óx
og húsið á sandi, það féll.
Svefn sígur á hali
Svefn sígur á hali,
svefn er runninn á dali.
Hann lokar augum barnanna
og leiðir þau upp til stjarnanna
og þar í draumalandi, liggja skeljar í sandi.
Kuðungar, perlur og hörpuskel
og allt sem börnin óska sér.
Upp´ á grænum
Upp´ á grænum, grænum himinháum hól,
sá ég hérahjónin ganga.
Hann með trommu, bomm bomm,
bommborommbommbomm
hún með fiðlu sér við vanga.
Þá læddist að þeim ljótur byssukarl,
og miðaði í hvelli,
en hann hitti bara trommuna sem small
og þau hlupu og héldu velli.
Gulur, rauður, grænn og blár
Gulur, rauður, grænn og blár,
svartur, hvítur, fjólublár.
Gott að eiga góða skó
gangi maður út í snjó/í rigningu og miklum snjó.
Gulur, rauður, grænn og blár,
svartur, hvítur, fjólublár.
Reyklagið
Við ýtum reyknum út og við togum reykinn inn
og reykurinn fer upp um skorsteininn.
Við syngjum glorí glorí halelúja
og reykurinn fer upp um skorsteininn - JÚHÚ!!
Hver hefur skapað
Hver hefur skapað blómin björt,
blómin björt, blómin björt?
Hver hefur skapað blómin björt?
Guð á himninum.
Hver hefur skapað fuglana....
Hver hefur skapað stjörnurnar....
Hver hefur skapað mig og þig....
Hver hefur skapað fiskana....
Hver hefur skapað fuglana....
Hver hefur skapað flugurnar....
Hver hefur skapað fílana....
Vögguvísa
Dvel ég í draumahöll og dagana lofa.
Litlar mýs um löndin öll liggja nú og sofa.
Sígur ró á djúp og dal,
dýr til hvílu ganga.
Einnig sofna skolli skal
með skottið undir vanga.
Baggalútur
Hvað kanntu að vinna,
Baggalútur minn?
Þráðarkorn að spinna
og elta lítið skinn.
Kveikja ljós og sópa hús,
ber' inn ask og fulla krús
og fara fram í eldhús!
Gráðug kerling og svangur karl
Gráðug kerling hitaði sér velling
og borðaði - namm, namm, namm
síðan sjálf - jamm, jamm, jamm
af honum heilan helling.
Svangur kallinn varð alveg dolfallinn
og starði svo - sko, sko, sko
heilan dag - o, ho, ho
ofan í tóman dallinn - aumingja kallinn
- hann fékk engan graut!
_______ datt í sjóinn
__________ datt í sjóinn og missti af sér skóinn
pollívollí, dúllívollí dei.
Svo kom hún upp úr sjónum og hélt á stóra skónum
pollívollí, dúllívollí dei.
__________ datt í sefið og missti af sér nefið
pollívollí, dúllívollí dei.
Svo kom hún upp úr sefinu og hélt á litla nefinu
pollívollí, dúllívollí dei.
(Lag: Tvær litlar mýs)
(einnig er hægt að bæta við vísum; kökuna/hökuna, brunninn/munninn, tréð/hnéð, snærið/lærið og svo framvegis)
Ég langömmu á
Ég langömmu á, sem að létt er í lund,
hún leikur á gítar hverju einustu stund,
í sorg og í gleði hún leikur sitt lag,
jafnt sumar sem vetur, jafnt nótt sem dag.
Dag einn er kviknað í húsinu var,
og brunaliðsbíllinn kom æðandi að,
og eldurinn bílaði um glugga og göng,
sat sú gamla uppi á þaki og spilaði og söng.
Með súðinni var hún, er sigldi í strand,
með síðasta skipsbátnum komst hún í land,
í svellandi brimi var sjóleiðin löng,
sat amma í skutnum og spilaði og söng.
Einn dag er hún gat ekki húsnæði greitt,
hún varð því að flytja, það fannst mörgum leitt.
Hún fékk sér þá bíl, því að leiðin var löng,
og látlaust hún spilaði á gítar og söng.
Og þegar hún keyrði um Kamba eitt sinn
úr Kömbunum valt ofan í urð bifreiðin.
Þar enduðu bílastjórans ævinnar göng,
en amma slapp lifandi og spilaði og söng.
En nú er amma liðin á braut,
liðin í burtu frá sorgum og þraut.
Ég gekk eitt sinn þangað, sem greftruð hún var,
frá gröfinni heyrði ég að ómaði lag.
Ein stór og digur kerling
Ein stór og digur kerling í stígvéli bjó.
Svo átti hún krakka að meira var en nóg.
Ef vild´ þau ekki hlýða hún tók þeim ærlegt tak,
og sló þau beint á bossann og í bælin sín þau rak.
Tilfinningablús
Ég finn það ofan í maga o-ho
Ég finn það niður í fætur o-ho
Ég finn það fram í hendur o-ho
Ég finn það upp í höfuð o-ho
Ég finn það hér og hér og hér
og hér og hér og hér og hér
hvað ég er glöð (reið / leið / þreytt / hress)
hér inni í mér.
Úti er alltaf að snjóa
Úti er alltaf að snjóa, því komið er að jólunum
og kólna fer í Pólunum.
En sussum og sussum og róa,
ekki gráta elskan mín - þó þig vanti vítamín,
Ávexti eigum við nóga - handa litlu krökkunum,
sem kúra sig í bökkunum.
Þú færð í magann þinn mjóa
melónur og vínber fín.
Ég er lítill teketill
Ég er lítill teketill, stuttur og sver
Þetta er mitt handfang og stúturinn hér.
Þegar í mér sýður þá væla ég fer
svo taktu mig upp og helltu úr mér!
I´m a little teapot short and stout
This is my handle, this is my spout
When I get all steamed up hear me shout
Then tip me over and pour me out
Matarvísa
Mér finnst gott að borða
blómkálssúpu og brauð
hamborgara, kjúklinga og súkkulaðifrauð
fisk og gos og franskar finnst mér gott að fá
og flatköku með miklu smjöri og hangikjöti á
fisk og franskar finnst mér gott að fá
og flatkökur með miklu smjöri og hangikjöti á.
Allur matur
Allur matur á að fara
upp í munn og ofan í maga
Heyrið þið það
Heyrið þið það
Svo ekki gauli garnirnar.
Við erum vinir
Við erum vinir, við erum vinir,
Ég og þú, ég og þú.
Leikum okkur saman, leikum okkur saman.
Ég og þú, ég og þú.
(Lag: Meistari Jakob)
Grænmetisvísur
Þeir sem bara borða kjöt
og bjúgu alla daga
þeir feitir verða og flón af því
og fá svo illt í maga.
En gott er að borða gulrótina,
grófa brauðið, steinseljuna,
krækiber og kartöflur
og kálblöð og hrámeti.
Þá fá allir mettan maga,
menn þá verða alla daga
eins og lömbin ung í haga,
laus við slen og leti.
Sá er fá vill fisk og kjöt
hann frændur sína étur
og maginn sýkist molnar tönn
og melt hann ekki getur.
En gott er að borða gulrótina,
grófa brauðið, steinseljuna,
krækiber og kartöflur
og kálblöð og tómata.
Hann verður sæll og viðmótsljúfur
og vinamargur, heilladrjúgur
og fær heilar, hvítar tennur,
heilsu má ei glata.
Einn var að smíða ausutetur
Einn var að smíða ausutetur, annar hjá honum sat.
Sá þriðji kom og bætti um betur
og boraði á hana gat.
Hann boraði á hana eitt, hann boraði á hana tvö,
hann boraði á hana þrjú og fjögur
og fimm og sex og sjö.
Ein stutt - ein löng
Ein stutt, ein löng,
hringur á stöng
og flokkur sem spilaði og söng.
Köttur og mús og sætt lítið hús.
Sætt lítið hús og köttur og mús.
Ein stutt, ein löng...
Penni og gat og fata sem lak.
Fata sem lak og penni og gat
Ein stutt, ein löng...
Lítill og mjór og feitur og stór.
Feitur og stór og lítill og mjór.
Ein stutt, ein löng...
Tombai
Tombai Tombai
Tombai Tombai
Tombai Tombai
Tombai
Don,Don,Don
Diri don Diri diri
Don don.
Tra la la la la
Tra la la la la
Tra la la la la la. Hei!
Mamma borgar
Á kaupmanninn rétt við búðarborðið
svo brosfögur horfði Stína:
"Ég ætlaði bara að kaupa klæði
í kjól á brúðuna mína."
"Og hvaða lit viltu, ljúfan," sagði´ann
"í kjól á brúðuna þína?"
"Hvað, auðvitað rauðan, já ósköp rauðan"
með ákafa svaraði Stína.
Hann brosandi fór og klippti klæðið.
"Hvað kostar það?" spurði Stína.
"Einn koss" hann svaraði, "kostar klæðið
í kjól á brúðuna þína."
Í búðinni glumdi við gleðihlátur,
er glaðlega svaraði Stína:
"Hún mamma kemur í bæinn bráðum
og borgar skuldina mína."
Óli og Berta
Óli fór til Bertu, bakaríistertu,
og bað hana að kyssa sig.
Þá sagði Berta, bakaríisterta:
"Bara ef þú elskar mig!"
Þá sagði Óli, sem var á hjóli,
"Berta, ég elska þig!"
Glöð sagði Berta, bakaríisterta,
"Nú máttu kyssa mig!"
Druslu-lagið"
Við setjum svissinn á og við kúplum gírnum frá,
það er startað og druslan fer í gang! Drun, drun!!
Það er enginn vandi að aka bifreið,
ef maður bara kemur henni í gang. Drun, drun!!
Halli
Haldið ekki´ að Halli komi´ á grúfunni,
á heljarstökki fram af einni þúfunni.
Hann fór það bara fínt, en hélt hann hefði týnt
gleraugunum, höfðinu´ eða húfunni.
Kubbahús
Kubbahús við byggjum brátt,
Báðum lófum smellum hátt.
Kubbum röðum sitt á hvað
(hvíslað) - hver vill skemma það?
Gleraugun hans afa
Til himins upp hann afi fór,
en ekkert þar hann sér.
Því gleraugunum gleymdi hann
í glugganum hjá mér.
Hann sér ei neitt á bréf né bók
né blöðin sem hann fær.
Hann fer í öfug fötin sín
svo fólkið uppi hlær.
Þótt Biblíuna hafi hann
sem hæst í skápnum er,
hann finnur ekki augun sín
og enga línu sér.
Á himnum stúlka engin er
hjá afa, líkt og ég,
sem finni stafinn fyrir hann
og fylgi út á veg.
Þegar barnið í föt sín fer
Þegar barnið í föt sín fer
fjarska margt að læra þörf er hér,
fyrst er reynt að hneppa hnapp.
Í hnappagatið loks hann slapp
renna lás og reima skó,
reyndar finnst mér komið nóg.
Þett' er gjörvallt í grænum sjó.
Við skulum:
Hneppa, renna, smella hnýta. x3
Hnýta slauf' á skó.
Leggir eru faldir tveir
Leggir eru faldir tveir,
einhver við þeim taki.
Hvar í felum eru þeir?
Heyrist hljóð að baki.
Karlinn í kassanum
Karlinn í kassanum, karlinn í kassanum.
Hvað ertu að gera, sefur þú?
Bakar þú bollur, burstar þú skóna?
Komdu nú, komdu nú út!!
Pálína og saumamaskínan
Það var einu sinni kerling
og hún hét Pálína,
Pálína-na-na, Pála, Pála, Pálína
það eina sem hún átti var saumamaskína,
maskína-na-na, sauma, saumamaskína.
Og kerlingin var lofuð
og hann hét Jósafat,
Jósa-fat-fat, Jósa, Jósa, Jósafat.
En hann var voða heimskur og hún var apparat,
apparat-rat-rat, appa, appa, apparat.
Karl gekk út um morguntímann
Karl gekk út um morguntímann
taldi alla sauði sína
Einn og tveir og þrír og fjórir,
allir voru þeir.
Með höndunum gerum við klapp klapp,
með fótunum gerum við stapp stapp stapp,
Einn, tveir þrír, ofurlítið spor,
einmitt á þennann hátt er leikur vor.
Óskasteinar
Fann ég á fjalli fallega steina,
faldi þá alla, vildi þeim leyna.
Huldi þar í hellisskúta heillasteina,
alla mína unaðslegu óskasteina.
Langt er nú síðan leit ég þá steina,
lengur ei man ég óskina neina
er þeir skyldu uppfylla um ævidaga,
ekki frá því skýrir þessa litla saga.
Gersemar mínar græt ég ei lengur,
geti þær fundið telpa´ eða drengur,
silfurskæra kristalla með grænu og gráu,
gullna roðasteina rennda fjólubláu.
Lína langsokkur
Hér skal nú glens og gaman,
við getum spjallað saman.
Gáum hvað þú getur.
Vinur gettu hver ég er.
Verðlaun þér ég veiti
ef að veistu hvað ég heiti.
Vaðir þú í villu,
þetta vil ég segja þér
Hér sérðu Línu langsokk
Tralla hop tralla hei tralla hopsasa.
Hér sérðu Línu langsokk.
Já, líttu það er ég
Svo þú sérð minn apa,
minn sæta, fína, litla apa.
Herra Níels heitir,
já, hann heitir reyndar það
Hérna höll mín gnæfir,
við himinn töfraborg mín gnæfir.
Fannstu annan fegurri
eða frægðarmeiri stað.
Hér sérðu Línu langsokk...
Þú höll ei hefur slíka
Ég á hest og rottu líka.
Og kúfullan af krónum
einnig kistil á ég mér
Veri allir vinir.
Velkomnir einnig hinir.
Nú lifað skal og leikið,
þá skal líf í tuskum hér
Hér sérðu Línu langsokk....
Anna sú hin sanna
Það var hún Anna sú hin sanna sem á klossun gekk
Heim hún gekk af gömlum vana, glamra lét hún tréklossana.
ah, ha, ha! Kæru gömlu klossana
Honum Manna mætti hún Anna sem á klossum gekk
Manni bara horfði á hana, henni gaf hann túlípana,
ah, ha, ha! Kyssti gömlu klossana.
Manni festi ást á Önnu sem á klossum gekk
Tók hann fleiri túlipana,
Tyllti þeim í tréklossana.
Ah, ha ha! Kæru gömlu klossana.
Anna sú hin eina og sanna sem .
Aldrei lét hún af þeim vana
Alltaf bar hún tréklossana.
Ah, ha, ha! Kæru gömlu tréklossana.
Ó mamma
Ó mamma gef mér rós í hárið á mér
því tveir litlir strákar eru skotnir í mér.
Annar er blindur og hinn ekkert sér,
ó mamma gef mér rós í hárið á mér.
Þegiðu stelpa þú færð enga rós,
farðu heldur með henni Gunnu út fjós.
Þar eru kálfar og þar eru kýr,
þar eru fötur til að mjólka í.
Ég ætla að syngja
Ég ætla að syngja, ég ætla að syngja,
ég ætla að syngja lítið lag.
Hérna eru eyrun, hérna eru augun
hérna er nebbinn minn
og munnurinn.
Ég ætla að syngja, ég ætla að syngja,
ég ætla að syngja lítið lag.
Hérna er bringan, hérna er naflinn
og hérna er rassinn minn
og búkurinn.
Ég ætla að syngja, ég ætla að syngja,
ég ætla að syngja lítið lag.
Hérna eru fingurnir, hérna er höndin
Hérna er olnboginn
og handleggurinn.
Ég ætla að syngja, ég ætla að syngja,
ég ætla að syngja lítið lag.
Hérna eru tærnar, hérna er hællinn
hérna er hnéð á mér
og fótleggur hér.
Strætisvagninn
Hjólin á strætó snúast hring, hring, hring,
hring, hring, hring, - hring, hring, hring,
hjólin á strætó snúast hring, hring, hring,
út um allan bæinn.
Dyrnar á strætó opnast út og inn,
út og inn, út og inn,
dyrnar á strætó opnast út og inn,
út um allan bæinn.
Peningarnir í strætó segja kling, kling, kling,
kling, kling, kling, kling, kling, kling,
peningarnir í strætó segja kling, kling, kling,
út um allan bæinn.
Fólkið í strætó það talar, talar, talar,
talar, talar, talar, talar, talar, talar,
Fólkið í strætó það talar, talar, talar,
út um allan bæinn.
Krakkarnir í strætó segja uh, uh, uh,
uh, uh, uh, uh,uh, uh,
krakkarnir í strætó segja uh, uh, uh,
út um allan bæinn.
Bílstjórinn í strætó segir ssh, ssh, ssh,
ssh, ssh, ssh, ssh, ssh, ssh,
Bílstjórinn í strætó segir ssh, ssh, ssh,
út um allan bæinn.
Rúðuþurrkurnar í strætó segja tsss, tssss, tssss,
tssss, tssss, tssss - tssss, tssss, tssss.
Rúðuþurrkurnar í strætó segja tsss, tssss, tssss,
út um allan bæinn.
Hjólin á strætó snúast hring, hring, hring,
hring, hring, hring, hring, hring, hring,
hjólin í strætó snúast hring, hring, hring,
út um allan bæinn.
Bátasmiðurinn
Ég negli og saga
og smíða mér bát
og síðan á sjóinn
ég sigli með gát.
Og báturinn vaggar
og veltist um sæ.
Ég fjörugum fiskum
með færinu næ.
Litli Óli í skógi
Litli Óli í skógi, milli trjánna hann reikar
og svo allt í einu sér hann
voða stóran hund,
Ooo :.holli rassi hí ha, holli rassi hí.:
- voða stóran skógarbjörn
- voða stóra mjólkurkú
- voða stóra mjaltarkonu
- voða sterkan vinnumann
Hundur: he he
Skógarbjörn: Klór
Mjólkurkú: Tú tú
Mjaltarkona: dída dída
Vinnumaður: oooooooooh
Fingraþula
Þumalfingur er mamma, sem var mér vænst og best.
Vísifingur er pabbi, sem gaf mér rauðan hest.
Langatöng er bróðir, sem býr til falleg gull.
Baugfingur er systir, sem prjónar sokka úr ull.
Litlifingur er barnið, sem leikur að skel.
Litli pínu anginn, sem stækkar svo vel.
Hér er allt fókið svo fallegt og nett.
Fimm eru á bænum, ef talið er rétt.
Ósköp væri gaman í þessum heim,
ef öllum kæmi saman - jafn vel og þeim.
Fingurnir
Þumalfingur, þumalfingur, hvar ert þú?
Hér er ég, hér er ég, góðan daginn, daginn, daginn.
Vísifingur, vísifingur, hvar ert þú?
Hér er ég, hér er ég, góðan daginn, daginn, daginn.
Langatöng, langatöng, hvar ert þú?
Hér er ég, hér er ég, góðan daginn, daginn, daginn.
Baugfingur, baugfingur, hvar ert þú?
Hér er ég, hér er ég, góðan daginn, daginn, daginn.
Litli fingur, litli fingur, hvar ert þú?
Hér er ég, hér er ég, góðan daginn, daginn, daginn.
Sólin skín
Sólin skín,
sólin skin.
Allt um kring,
allt um kring.
Býr til birtu og skugga,
skín inn um minn glugga.
Mér verður hlýtt,
mér verður hlýtt.
(Lag: Meistari Jakob)
Regnið streymir
Regnið streymir,
regnið streymir.
Yfir jörð,
yfir jörð.
Drippi, drippi, dropp, dropp.
drippi, drippi, dropp, dropp.
Pollur hér,
handa mér.
(Lag: Meistari Jakob)
Rauði karlinn
Rauði karlinn, rauði karlinn
kallar til þín hér.
Hann biður þig að bíða
best er því að hlýða.
Stans hann segir,
stans hann segir.
Stans og gættu að þér.
(Lag: Allir krakkar)
Græni karlinn
Græna karlinn, græna karlinn
krakkar þekkja flest.
Göngumerki gefur
gát á öllu hefur.
Yfir götu öll við göngum
glöð í einni lest.
(Lag: Allir krakkar)
Í upphafi söngstundar
Halló krakkar, halló krakkar,
velkomin í dag!
Gaman er að sjá ykkur
og gaman er að fá ykkur!
Halló krakkar, halló krakkar,
velkomin í dag!
Í lok söngstundar
Jæja krakkar, jæja krakkar,
takk fyrir í dag!
Gaman var að sjá ykkur
og gaman var að fá ykkur!
Jæja krakkar, jæja krakkar,
takk fyrir í dag
Við klöppum öll í einu
Við klöppum öll í einu,
við klöppum öll í einu,
við klöppum öll í einu,
það líkar okkur best!
(Allir syngja lagið og klappa taktinn. Svo má bæta við erindum t.d. stöppum, hoppum, grátum, hlæjum, sofum, hvíslum, smellum o.s.frv)
Faðir Abraham
Faðir Abraham
og hans synir.
Og hans synir
faðir Abraham
Og þeir átu kjöt
og þeir drukku öl
og þeir skemmtu sér mjög vel.
Hægri hönd,
vinstri hönd,
hægri fótur,
vinstri fótur,
höfuðið með,
búkurinn með.
Kúreki á hesti
Ég er kúreki á hesti
og líka sá besti
sem nokkur´n tíma´nn hefur setið hest.
Ég er ofsa glanni
enda er ég Ameríkani
og var rétt í þessu að ná í lest. Íha
Hey baluba
:,: Hey baluba:,:
Hey, hey baluba lei:,:
:,:ori, ori,ei:,:
Balu, balu, baggasei:,:
Leiklýsing: Börnunum er skipt í tvo hópa, fyrst syngur annar hópurinn, síðan endurtekur hinn.
Sláðu og sláðu
Sláðu og sláðu með einum hamri
Sláðu og sláðu með einum hamri
Sláðu og sláðu með einum hamri
sláðu í allan dag
Sláðu og sláðu með tveimur hömrum...
Sláðu og sláðu með þremur hömrum...
Sláðu og sláðu með fjórum hömrum...
Ég heyri svo vel
Ég heyri svo vel, ég heyri grasið gróa
ég heyri svo vel, ég heyri snjóinn snjóa
ég heyri svo vel, ég heyri orminn mjóa,
heyri hárið vaxa,
heyri neglurnar lengjast,
heyri hjartað slá.
Litirnir
Grænt, grænt, grænt
er grasið úti í haga.
Grænt, grænt, grænt
er gamla pilsið mitt.
Allt sem er grænt, grænt
finnst mér vera fallegt
fyrir vin minn, litla Jón á Grund
Gul, gul, gul
er góða appelsínan.
Gul, gul, gul
er gamla húfan mín.
Allt sem er gult, gult
finnst mér vera fallegt
fyrir vin minn, litla Kínverjann.
Rauð, rauð, rauð
er rósin hennar mömmu.
Rauð, rauð, rauð
er rjóða kinnin mín.
Allt sem er rautt, rautt
finnst mér vera fallegt
fyrir vin minn, litla indíánann
Svart, svart, svart
er sjalið hennar frænku.
Svart, svart, svart
er litla lambið mitt.
Allt sem er svart, svart
finnst mér vera fallegt
fyrir vin minn, litla svertingjann.
Blátt, blátt, blátt
er hafið bláa hafið.
Blár, blár, blár
er blái himininn.
Allt sem er blátt, blátt
finnst mér vera fallegt
fyrir vin minn, litla sjómanninn
Hvít, hvít, hvít
er hvíta snjókerlingin.
Hvít, hvít, hvít
eru skýin sem ég sé.
Allt sem er hvítt, hvítt
finnst mér vera fallegt
fyrir vin minn, litla snjókarlinn.
Hafið bláa hafið
Hafið, bláa hafið, hugann dregur.
Hvað er bak við ystu sjónarrönd?
Þangað liggur beinn og breiður vegur.
Bíða mín þar æskudrauma lönd.
Beggja skauta byr
bauðst mér aldrei fyrr.
Bruna þú nú, bátur minn.
Svífðu seglum þöndum,
svífðu burt frá ströndum.
Fyrir stafni haf og himinninn.
Tröllalagið
Hátt upp´ í fjöllunum, þar búa tröllin.
Tröllapabbi, Tröllamamma og litli Trölli Rölli.
HÓ, segir Tröllapabbi,
hó segir Tröllamamma.
En hann litli Trölli Rölli segir bara hó.
(Lag: Eitt skref til hægri..)
Við erum söngvasveinar
Við erum söngvasveinar
á leiðinni út í lönd.
Við erum söngvasveinar
á leiðinni út í lönd.
Við leikum á flautu,
skógarhorn og skógarhorn.
Við leikum á flautu,
fiðlu og skógarhorn.
Og við skulum dansa hoppsasa - HOPPSASA
Í rigningu ég syng
Í rigningu ég syng, í rigningu ég syng.
Það er stórkostlegt veður
mér líður svo vel.
Armar fram og armar að.
Tjutti tja, tjutti tja, tjuttu tja tja.
Í rigningu ég syng,
í rigningu ég syng.
Það er stórkostlegt veður
mér líður svo vel.
Armar fram og armar að.
Beygja hné.
Tjutti tja, tjutti tja, tjutti tja tja.
Rassinn út
Inn með tær
Hakan upp
Tungan út
Myndin hennar Lísu
Gult fyrir sól, grænt fyrir líf
grátt fyrir þá sem reka menn út í stríð.
Hvítt fyrir börn sem biðja um frið,
biðja þess eins að mega lifa eins og við.
Er ekki jörðin fyrir alla?
Taktu þér blað, málaðu á það,
mynd þar sem allir eiga öruggan stað.
Augu svo blá, hjörtu sem slá
hendur sem fegnar halda frelsinu á.
Þá verður jörðin fyrir alla.
Gönguljóð góða dátans
Í gönguferðum er gamall siður:
Annan fótinn upp þegar hinn fer niður.
Simmsala, dassala, búmmsala búmm!
Annan fótinn niður þegar hinn fer upp.
Ljúfir fagnaðarfundir
Ljúfir fagnaðarfundir,
góðan dag og góðar stundir.
Hérna syngjum allir saman,
það er gleði og gaman.
Kát við syngjum saman,
syngjum hátt; já þá er gaman.
Látum sönginn ávallt óma
okkur til sóma.
Djúp og breið
:,:Djúp og breið, djúp og breið,
Það er á sem rennur djúp og breið:,:
Og hún rennur til þín og hún rennur til mín
og hún heitir lífsins lind - Halelúja!
Hún er djúp og breið, djúp og breið,
það er á sem rennur djúp og breið.
Nú skulum við syngja saman
Nú skulum við syngja saman
því söngurinn eflir vorn þrótt og bætir geð
það yrði svo ósköp gaman
ef allir myndu syngja með!
Á íslensku má alltaf finna svar
Á íslensku má alltaf finna svar
og orða stórt og smátt sem er og var,
og hún á orð sem geyma gleði´ og sorg,
um gamalt líf og nýtt í sveit og borg.
Á vörum okkar verður tungan þjál,
þar vex og grær og dafnar okkar mál.
Að gæta hennar gildi hér og nú,
það gerir enginn - nema ég og þú.
Bræðralagssöngurinn
Vorn hörundslit og heimalönd
ei hamla látum því,
að bræðralag og friðarbönd
vér boðum heimi í.
:,:Nú saman tökum hönd í hönd,
og heits þess minnumst við,
að tengja saman lönd við lönd
og líf vort helga frið.:,:
Litlir kassar
Litlir kassar á lækjarbakka.
Litlir kassar og dinga linga ling.
Litlir kassar litlir kassar
Litlir kassar allir eins.
Einn er rauður, annar gulur,
þriðji fjólublár, fjórði röndóttur.
Allir ónýtir og dinga linga
enda eru þeir allir eins.
Og í húsunum eiga heima
ungir námsmenn sem ganga í háskóla.
Sem lætur þá inn í litla kassa.
Litla kassa alla eins.
Þeir gerast læknar og lögfræðingar
og Landsbankastjórnendur.
Og við þeim öllum er dinga linga.
Enda eru þeir allir eins.
Kátir dagar
Kátir dagar koma' og fara, koma' og fara,
hvað er það að lifa' og spara, lifa' og spara,
dátt við syngjum dönsum nætur, dönsum nætur,
dröttumst oftast seint á fætur, seint á fætur.
Þannig áfram, áfram, áfram ævin líður
undur fljótt og tíminn aldrei bíður, bíður.
Svífa' í sælum draumi svanni' og halur fríður,
syngja' og dansa og tra, la, la, la, la.
Vífin ungu vefjum örmum, vefjum örmum,
villumst stundum gleymum hörmum, gleymum hörmum,
oft um nætur ástin brennur, ástin brennur,
öll á burt er dagur rennur, dagur rennur.
Ef þig langar að syngja
Ef þig langar að syngja þinn söng,
er söngvastundin að renna upp núna.
Enginn syngur þann söng í þinn stað.
Á morgun er orðið til söngs og seint,
við syrgjum þau ljóð sem í þögnina dóu.
Svo settu ekki, vinur, þinn söng á frest,
heldur syngdu hann nú! Það er best.
Ef þú, vinur, átt örlitla ást,
er ástarstundin að renna upp núna,
og enginn mun elska í þinn stað.
Að elsa á morgun er alltof seint
og ónýt hver löngun sem fékk ekki að rætast.
Svo sláðu því í ást þinni ekki á frest,
heldur elskaðu nú! Það er best.
Í Hlíðarendakoti
Fyrr var oft í koti kátt
krakkar léku saman.
Þar var löngum hlegið hátt,
hent að mörgu gaman.
Úti' um stéttar urðu þar
einatt skrýtnar sögur
þegar safnast saman var
sumarkvöldin fögur.
Eins við brugðum okkur þá
oft á milli bæja
til að kankast eitthvað á
eða til að hlæja.
Margt eitt kvöld og margan dag
máttum við í næði
æfa saman eitthvert lag
eða syngja kvæði.
Bænum mínum heima hjá,
Hlíðar brekkum undir,
er svo margt að minnast á
margar glaðar stundir.
Því vill hvarfla hugurinn,
heillavinir góðir,
heim í gamla hópinn minn,
heim á fornar slóðir.
Hann Tumi fer á fætur
Hann Tumi fer á fætur
við fyrsta hanagal,
að sitja yfir ánum
lengst inn í Fagradal.
Hann lætur hugann líða
svo langt um dali og fjöll
því kóngur vill hann verða
í voða stórri höll.
Og Snati hans er hirðfífl
og hrútur ráðgjafinn,
og smalahóll er höllin,
en hvar er drottningin?
Blátt lítið blóm eitt er
Blátt lítið blóm eitt er,
ber nafnið "Gleymdu ei mér".
Væri ég fleygur fugl,
flygi ég til þín.
Svo mína sálu nú,
sigraða hefur þú,
engu ég unna má,
öðru en þér.
Mikki refur
Rétt við ruslabing,
ryðgað dót í kring,
brotið gler og beyglað pjátur.
Mikki frændi minn,
malinn fyllir sinn.
Við það gerist karlinn kátur.
Lífið hljóðlátt er,
þar sem aldinn Mikki fer.
Gamla fötu fann
og nú hamrar hann,
botninn eins og best hann kann.
Flytur fagran óð
fuglahjörðin góð
yfir hauginn, holt og grundir.
Einnig út á sjó,
allt í steríó,
Mikki ráumur raular undir.
Lífið hljóðlátt er,
þar sem aldinn Mikki fer.
Gamla fötu fann
og nú hamrar hann,
botninn eins og best hann kann.
Furðuverk
Ég á augu, ég á eyru
ég á lítið skrítið nef.
Ég á augabrúnir, augnalok
sem lokast þegar ég sef.
Ég á kinnar og varir rauðar
og á höfði hef ég hár.
Eina tungu og tvö lungu
og heila sem er klár.
Því ég er furðuverk
algjört furðuverk
sem að Guð bjó til
lítið satt ég skil.
Ég á tennur og blóð sem rennur
og hjarta sem að slær.
Tvær hendur og tvo fætur,
tíu fingur og tíu tær.
Ég get gengið, ég get hlaupið,
kann að tala mannamál.
Ég á bakhlið, ég á framhlið
en innst inni hef ég sál.
Því ég er furðuverk,
algjört furðuverk,
sem að Guð bjó til.
lítið samt ég skil.
Inni í heilanum spurningum
ég velti fyrir mér
og stundum kom svörin
svona eins og af sjálfu sér.
En samt er margt svo skrýtið
sem ég ekki skil
en það gerir ósköp lítið
því mér finnst gaman að vera til.
Meistari Jakob
Meistari Jakob, meistari Jakob,
sefur þú, sefur þú?
Hvað slær klukkan?
Hún slær þrjú, hún slær þrjú
Enska
Are you sleeping, are you sleeping,
Brother John, brother John,
Morning Bells are ringing,
Ding ding dong, ding ding dong.
Finnska
Jaakko kulta Jaakko kulta
Herää jo herää jo
Kellojasi soita kellojasi soita
Piu pau pou piu pau pou.
Þýska
Bruder Jakob, Bruder Jakob,
Schläfst du noch? Schläfst du noch?
Hörst du nicht die Glocken?
Ding dang dong, ding dang dong.
Franska
Frère Jacques, Frère Jacques
Dormez-vous, dormez-vous?
Sonnez les matines,
Ding ding dong, ding ding dong.
Sænska
Broder Jakob, broder Jakob
sover du, sover du?
Hör du inte klockan
Ding ding dong
Danska
Mester Jakob, Mester Jakob,
Sover du? Sover du?
Hører du ej klokken?
Bim, bam, bum, bim, bam, bum.
Hó, hó
Hérna koma nokkur risa tröll
hó, hó
þau öskra svo það bergmálar um fjöll
hó, hó
Þau þramma yfir þúfurnar
svo fljúga burtu dúfurnar
en bak við fjöll er sólin hlý í leyni
hún skín á tröll svo verða þau að steini
Litla mjólkurlagið
Mjólk er góð, fyrir káta krakka,
kynjaþjóð, bæði álfa og tröll.
Mjólk er góð, girnileg að smakka,
glöð og rjóð þá við verðum öll.
Mjólk er góð fyrir mig og þig.
Mjólk er góð.
Ég og þú, vinir skulum vera,
vaxa hratt og verða myndarfólk.
Að bursta vel, það er um að gera,
brosandi við drekkum mikla mjólk.
Mjólk er góð fyrir mig og þig.
Mjólk er góð.
Siggi og Stína
Hann hét Siggi, hún hét Stína,
þau áttu lítinn leirkofa í Kína.
Hann var langur, hún var lítil
og Peking hundinn sinn þau nefndu Trítil - voff, voff.
Út´ á akri á daginn unnu
en á kvöldin sátu heima og silki spunnu.
Og þau átu - namm, namm - í hvert mál
hrísgrjónagraut úr risastórri skál.
:,:Hrísgrjónagraut úr skál, hrísgrjónagraut úr skál,
hrísgrjónagraut úr skál. :,:
Hresstu þig við
Hresstu þig við, liðkaðu lið.
Dúddelí dú, dúddelí dú.
Laust og létt, lipurt og þétt.
Dúddelí dú, dúddelí dú,
láttu nú hendurnar hraðara ganga/hægara ganga,
hreyfðu nú á þér skankana langa.
Dúddelí dú, dúddelí dú.
Byrjum aftur nú... JÚHÚ!!!
Upp, upp og niður
Upp, upp og niður, upp, upp og niður,
upp, upp og niður og klappa svo.
Fram og til baka, fram og til baka,
fram og til baka og klappa svo.
Vinstri og hægri - Höfuð og axlir - Augu og eyru -
Munnur og nef - Haka og enni - Bringa og nafli -
Rass og magi - Læri og hné - Ristar og tær.
Um landið bruna bifreiðar
Um landið bruna bifreiðar,
bifreiðar, bifreiðar,
með þeim við skulum fá oss far
og ferðast hér og þar.
Ba-bú, ba-bú,
tr-la-la-la-la-la-la,
ba-bú, ba-bú,
tra-la-la-la-la!
Um loftin fljúga flugvélar,
flugvélar, flugvélar,
með þeim við skulum fá oss far
og ferðast hér og þar.
Ba-bú......
Um höfin sigla skúturnar,
skúturnar, skúturnar.
með þeim við skulum fá oss far
og ferðast hér og þar.
Ba-bú.....
Á Heiðarseli gaman er
Á Heiðarseli gaman er (á Heiðarseli gaman er)
svo komdu nú og vertu með. (svo komdu nú og vertu með)
Gleðin hún er alltaf hér! (gleðin hún er alltaf hér)
1-2-3 (einn, tveir, þrír)
4-5-6 (fjórir, fimm, sex)
9-10 (níu, tíu)
Á Heiðarseli líkar mér! (á Heiðarseli líkar mér)
Á Heiðarseli kraftur er
Í heilsuskóla fjörið er, (í heilsuskóla fjörið er)
allir eru hraustir hér. (allir eru hraustir hér)
Næring bætir okkar geð, (næring bætir okkar geð)
viltu ekki vera með. (viltu ekki vera með)
Epli, rófa, kál - vöðva eins og stál. (epli, rófa, kál - vöðva eins og stál)
Hreyfing skemmtileg - hoppum saman hér. (hreyfing skemmtileg - hoppum saman hér)
Á Heiðarseli kraftur er! (á Heiðarseli kraftur er!)
Í leikskóla er gaman
Í leikskóla er gaman, þar leika allir saman.
Leika úti og inni og allir eru með.
Hnoða leir og lita, þið ættuð bara að vita
hvað allir eru duglegir í leikskólanum hér - HEIÐARSEL!
Við erum góð
Við erum góð, góð hvert við annað.
Stríðum ekki eða meiðum neinn.
:,: Þegar við grátum huggar okkur einhver
þerrar tár og klappar okkar kinn :,:
Allir krakkar
Allir krakkar, allir krakkar eru í skessu leik.
Má ég ekki mamma, með í leikinn þramma.
Mig langar svo, mig langar svo að lyfta mér á kreik.
Allir krakkar, allir krakkar eru að fara út.
Út með skóflu og fötu, en ekki út á götu.
Allir krakkar, allir krakkar eru að fara út.
Allir krakkar, allir krakkar eru að fara heim
Heim til pabba og mömmu, líka afa og ömmu.
Allir krakkar, allir krakkar eru að fara heim.
Það er leikur að læra
Það er leikur að læra
leikur sá er mér kær,
að vita meira og meira
meira í dag en í gær.
Bjallan hringir, við höldum
heim úr skólanum glöð,
prúð og frjálsleg í fasi
fram nú, allir í röð.
Ég heyri þrumur
Ég heyri þrumur, ég heyri þrumur
Heyrir þú, heyrir þú?
Droparnir detta, droparnir detta.
Ég er gegnblautur, ég er gegnblautur.
Litarím
Gul er sólin, vertu viss,
vel kann hún að skína.
Ostur, sósa, epli, piss,
og íbúar í Kína.
Eiki rauði á Rauðalæk,
rauður eins og karfi,
vandi sig á vondan kæk
og varð af stórum arfi.
Græningi með grænan hatt
grænum baunum torgar
Aldrei grænan eyri í skatt
yfirvöldum borgar.
Þýtur blái bíllinn hjá,
í Blátún var hann sendur.
Kata er orðin berjablá,
bæði um munn og hendur.
Mikið er hún Bogga brún
bæði um nef og fætur.
Á sólbaðsstofu sefur hún
í samloku allar nætur.
Í fljótu bragði finn ég vart
fleiri svarta þætti.
Útlitið er svona svart
mér sýnist best ég hætti.
Stóra brúin
Stóra brúin fer upp og niður,
upp og niður, upp og niður,
stóra brúin fer upp og niður,
allan daginn!
Bílarnir aka yfir brúna,
yfir brúna, yfir brúna.
Bílarnir aka yfir brúna,
allan daginn!
Flugvélar fljúga yfir brúna,
yfir brúna, yfir brúna.
Flugvélar fljúga yfir brúna,
allan daginn!
Fuglarnir fljúga yfir brúna,
yfir brúna, yfir brúna.
Fuglarnir fljúga yfir brúna,
allan daginn!
Fiskarnir synda undir brúna,
undir brúna, undir brúna.
Fiskarnir synda undir brúna,
allan daginn!
Skipin sigla undir brúna,
undir brúna, undir brúna.
Skipin sigla undir brúna,
allan daginn!
Litla brúin fer upp og niður,
upp og niður, upp og niður.
Litla brúin fer upp og niður,
allan daginn.
Systa mín
Hún systa mín litla á ljósgullið hár,
sem liðast svo mjúkt eins og ull.
Hún hefur nú lifað í hálft þriðja ár,
og hún á mörg nýstárleg gull.
Hún á brúðu í kjól og brúðan á stól.
Hún á bangsa og fallega gæs.
Og systa á bók en þó systa sé klók,
er hún samt ekki enn orðin læs.
Og guðslangan daginn hún hoppar og hlær,
og hlátur er, hvar sem hún fer.
Hún kyssti mig snöggvast á kinnina í gær
og klappaði á hökuna á mér.
Mig e góu vi dig, dú e góu vi mig,
da er gaman að vera já dér,
hún sagði og hló, en svo var það nóg,
og hún sentist í burtu frá mér.
Já, systa mín litla er svolítið peð.
En seinna, hvað verður hún þá?
Það hefur svo margt afar-ótrúlegt skeð,
að enginn er fær um að spá.
Kannski ráðunautsfrú? Kannski ráðherrafrú?
Því ræður nú framtíðin hljóð.
En hvert hana ber, og hvar sem hún er
og hvert sem hún fer, er hún góð.
Þá líður okkur vel
Það er gaman að vera saman, vera saman, vera saman.
Það er gaman að vera saman, þá líður okkur vel.
Vinur þinn er vinur minn
og vinur minn er vinur þinn.
Það er gaman að vera saman, þá líður okkur vel.
Það er gaman að syngja saman, syngja saman, syngja saman.
Það er gaman að syngja saman, syngja saman í kór.
Heyra þinn tón og minn tón,
heyra minn hljóm og þinn hljóm.
Það er gaman að syngja saman, syngja saman í kór.
Það er gaman að lita saman, lita saman, lita saman.
Það er gaman að lita saman, þá líður okkur vel.
Lita rauðan og bláan, gulan og grænan.
Það er gaman að lita saman, þá líður okkur vel.
Tannvísa
Tönnin mín, tönnin mín, tönnin mín er hvít og fín.
Burstuð hún alltaf er, bæði þar og hér.
Borða góðan hollan mat, á tönnina ekki kemur gat.
Tönnin mín, tönnin mín, alltaf hvít og fín.
Tönnin er með gati hér, grátandi hún líka er.
Burstuð hún ekki var, hvorki hér né þar.
Karíus á henni sat og hjó í hana stærðar gat.
Tönnin er með gati hér, grátandi hún er.
Tannlagið
Það skemmist ei tönn sem er skínandi hrein,
því skal ég ekki neitt láta vinna þeim mein.
Þann krakka er í sífellu sælgæti vill,
sækir þeim tannpínan ill.
:,: Það er grátlegt og leitt :,:
að geta varla tuggið neitt.
Rauðhetta
:,:Rauðhetta litla:,:
Rauðhetta litla labbar nú af stað,
hún fer í gegnum grænan skóg
og gott í poka hefur nóg.
Rauðhetta litla labbar nú af stað.
:,:Úlfurinn hleypur:,:
Úlfurinn hleypur inn í grænan skóg,
en Rauðhetta litla þar inni er
alveg hreint hún gleymir sér.
Úlfurinn hleypur inn í grænan skóg.
:,:Amma mín góða:,:
Amma mín góða inn í grænum skóg,
ég kem, ég kem, ég kem til þín
með kökur og blómin fín.
Amma mín góða inn í grænum skóg.
:,:Þá fer nú illa:,:
Þá fer nú illa inn í grænum skóg.
Ömmu gleypir úlfurinn,
upp í rúmið skreið þrjóturinn.
Þá fór nú illa inn í grænum skóg.
:,:Rauðhetta kemur:,:
Rauðhetta kemur í kot í grænum skóg.
Ætlar að hitta ömmuna
en úlfurinn líka gleypt' hana.
Rauðhetta kemur í kot í grænum skóg.
:,:Úlfurinn sefur:,:
Úlfurinn sefur inn í grænum skóg.
En veiðimaður var þar hjá
með voða mikinn hníf að sjá.
Úlfurinn sefur inn í grænum skóg.
:,:Öllu var bjargað:,:
Öllu var bjargað inn í grænum skóg.
Hann bjó til gat á bumbuna
þá ultu út amma og Rauðhetta.
Öllu var bjargað inn í grænum skóg.
:,:Ósköp var gaman:,:
Ósköp var gaman inn í grænum skóg.
Nú opnuðu þau körfuna,
amma gamla og Rauðhetta.
Ósköp var gaman inn í grænum skóg.
Hafragrautur góður er
Hafragrautur góður er
gæða sér á honum ber.
Hafragrautur gefur kraft
góður bæði með mjólk og saft.
Hafragrautur á brattri braut
borða menn í strit'i og þraut.
Þeir sem gófla hafragraut
sterkir verða eins og naut.
(Rappað)
Gull og perlur
Gulli og perlum að safna sér
sumir endalaust reyna.
Vita ekki að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
Lag: Vem kan segla förutan vind
Vinur minn
Það er skemmtilegast að leika sér
þegar allir eru með.
Í stórum hóp inn um hlátrasköll
geta ævintýrin skeð.
Svo vertu velkominn,
nýi vinur minn.
Það er skemmtilegast að leika sér
þegar allir eru með.
Það er ótrúlegt hverju lítið bros
fengið getur breytt.
Getur glatt og huggað jafnvel þá
sem við þekkjum ekki neitt.
Svo vertu velkominn,
nýi vinur minn.
Það er ótrúlegt hverju lítið bros
fengið getur breytt.
Suðurnesjamenn
Sæmd er hverri þjóð að eiga sægarpa enn.
Ekki var að spauga með þá Útnesjamenn.
Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn
fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn.
Unnur bauð þeim faðm sinn svo ferleg og há.
Kunnu þeir að beita hana brögðum sínum þá.
Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn
fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn.
Kunnu þeir að stýra og styrk var þeirra mund.
Bárum ristu byrðingarnir ólífisund.
Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn
fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn.
Ekki er að spauga með íslenskt sjómannsblóð,
ólgandi sem hafið og eldfjallaglóð.
Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn
fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn.
Ásækið sem logi og áræðið brim,
hræðist hvorki brotsjó né bálviðra glym.
Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn
fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn.
Gull að sækja' í greipar þeim geigvæna mar
ekki nema ofurmennum ætlandi var.
Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn
fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn.
Höfuð, herðar, hné og tær
:Höfuð, herðar, hné og tær,
hné og tær.:
Augu, eyru, munnur og nef.
Höfuð, herðar, hné og tær,
hné og tær.
:Hnakki, kinnar, haka og háls,
haka og háls.:
Bringa, magi, bak og rass.
Hnakki, kinnar haka og háls,
haka og háls.
Heiðarselsbragur
Það eru kátir krakkar
á Heiðarseli í dag
sem koma hérna saman
og þau syngja þetta lag
og sýna ykkur verkin
sem í vetur voru gerð
það varla dylst að hérna
eru snillingar á ferð.
"Já við erum kátir krakkar
og á kostum förum hér
við kunnum öll að skemmta
okkur eins og vera ber.
Við eigum okkur ljúfan draum
um lífsins ævintýr
og langar að sýna öllum
hvað í okkur býr".
Heiðarsels krakkarnir
Við erum krakkar á Heiðarseli
og keppumst öll við að vera þæg,
en stríðni og óþekkt þó liggja í leyni
og laumast oft inn í krakksæg.
Lag: You are my sunshine
Rímorð og leikur með hreyfingu
Er þetta tré? Nei þetta er hné.
Er þetta glingur? Nei þetta er fingur.
Er þetta á? Nei þetta er tá.
Er þetta kvef? Nei þetta er nef.
Er þetta klár? Nei þetta er hár.
Er þetta penni? Nei þetta er enni.
Er þetta kaka? Nei þetta er haka.
Er þetta hagi? Nei þetta er magi.
Er þetta lak? Nei þetta er bak.
Er þetta önd? Nei þetta er hönd.
Eru þetta skæri? Nei þetta' eru læri.
Eru þetta nótur? Nei þetta er fótur.
:Kannt'u að ríma, kannt'u að ríma?
Já ég kann það bara vel.:
Kirie-kiro
Mig langar svo mikið í sund mamma!
-nei elskan ekki í dag!
Mig langar í nammi og ís mamma!
-nei ástin ekki í dag!
Þú sagðir það sama í gær mamma!
-ég segi það líka í dag!
Hvenær má ég það þá mamma?
-kannski um helgina!
:Kíri-kíri-jei, kíri-kíri-vóhó,
kíri-kíri-kír, kíri-kír, mamma:
Mig langar svo mikið í bíó mamma!
-nei elskan...
Mig langar í pylsu og gos mamma!
-nei ástin...
Barnasöngur frá Tanzaníu
:Si-mama ka, si-mama ka,:
rú ka, rú ka, rú ka
si-mama ka.:
:Tem-be-ja, tem-be-ja,:
rú ka, rú ka, rú ka
tem-be-ja ka.:
:Í Latabæ, í Latabæ.
Þar hoppa ég og hlæ.
Í Latabæ.:
Formalagið
Þetta er hringur, þetta er hringur.
Hvernig veistu það? Hvernig veistu það?
Hann getur rúllað, hann getur rúllað.
Eins og dekk á bíl, eins og dekk á bíl.
Hér er þríhyrningur, hér er þríhyrningur.
Hvernig veistu það? Hvernig veistu það?
Hann hefur þrjú horn, hann hefur þrjú horn.
Einn, tveir, þrír. Einn, tveir, þrír.
Hér er ferningur, hér er ferningur.
Hvernig veistu það? Hvernig veistu það?
Hann hefur allar, hann hefur allar,
hliðar jafnlangar, hliðar jafnlangar.
Lag: Meistari Jakob
Ef sólin væri á bragðið eins og sleikjó
Ef sólin væri á bragðið eins og sleikjó
rosalegt fjör yrði þá.
Ég halla mér aftur með tunguna út
AAAAAAAAAA
rosalegt fjör yrði þá.
Ef rigningin væri bleikir gúmmíbirnir
rosalegt fjör yrði þá.
Ég halla mér aftur með tunguna út
AAAAAAAAAA
rosalegt fjör yrði þá.
Ef skýin væru úr sykurpúðapoppi
rosalegt fjör yrði þá.
Ég halla mér aftur með tunguna út
AAAAAAAAAA
rosalegt fjör yrði þá.
Ef leikskólinn væri súkkulaðikaka
rosalegt fjör yrði þá.
Ég halla mér aftur með tunguna út
AAAAAAAAAA
rosalegt fjör yrði þá.