Heiðarsel - Dýralög

Hefur þú séð.....

Hefur þú séð krókódíl ferðast
um í brunabíl?

Hefur þú séð kjúklinga
fara út með vettlinga?

Hefur þú séð skjaldböku
borða stóra brúnköku?

Hefur þú séð páfagauk
háma í sig steiktan lauk?

Hefur þú séð sebrahest
taka spor við gamlan prest?


Litla kisa


Litla kisa, litla kisa
leptu rjómann þinn.
Langar þig að lúra,
liggja hér og kúra?
Víst þú hefur, víst þú hefur
voða fallegt skinn.
                                                   (Lag: Bangsi lúrir)

Hver var að hlæja

Hver var að hlæja þegar ég kom inn?
Kannski það hafi verið kötturinn.
:,:Jæja, nú jæja, látum hann hlæja,
Kannski hann hlæi ekki í annað sinn:,:


Ding dong


Ding dong sagði lítill grænn froskur einn dag.
Ding dong sagði lítill grænn froskur.
Ding dong sagði lítill grænn froskur einn dag
og svo líka ding dong doj oj oj oj oj.

King kong sagði stór svartur api einn dag.
King kong sagði stór svartur api.
King kong sagði stór svartur api einn dag
og svo líka king kong a a a a a.

Mm ah sagði lítil græn eðla einn dag.
Mm ah sagði lítil græn eðla.
Mm ah sagði lítil græn eðla einn dag
Og svo líka mm ah a a a a a.

Blúbb blúbb sagði lítill blár fiskur einn dag.
Blúbb blúbb sagði lítill blár fiskur.
Blúbb blúbb sagði lítill blár fiskur einn dag
og svo líka blúbb blúbb-blúbb-blúbb-blúbb-blúbb-blúbb

Mjá mjá sagði lítil grá kisa einn dag.
Mjá mjá sagði lítil grá kisa.
Mjá mjá sagði lítil grá kisa einn dag
og svo líka mjá mjá mjááááááááá!


Hani, krummi


Hani, krummi, hundur, svín,
hestur, mús, tittlingur;
galar, krunkar, geltir, hrín,
gneggjar, tístir, syngur.


Klói kattarskrækur

Ég heiti Klói kattarskrækur, í kofa stórum bý (hvæs).
Um strætin læðist léttur, sprækur
og læt fólk kenna á því (hvæs).
Ég skelfi hér alla - búmm búmm -
konur og kalla - mjá.
Duruddu, ruddu, ruddu, ruddu,
duruddu, duruddu, du (hvæs!).


Mýsnar dansa og hoppa hér

Mýsnar dansa og hoppa hér.
Mýsnar dansa og hoppa hér.
Þá kemur gamla kisa,
þá kemur gamla kisa.

Fljót að fela þig, litla mús.
Fljót að fela þig, litla mús,
þá fer hún gamla kisa,
þá fer hún gamla kisa.


Göngum, göngum


Göngum, göngum, göngum upp í gilið,
Gljúfrabúann til að sjá.
Þar á klettasyllu svarti krummi
sínum börnum liggur hjá.


Syngjandi hér, syngjandi þar

Viðlag:
Syngjandi hér, syngjandi þar
syngjandi geng ég allsstaðar
Sí og æ
Æ og sí
Aldrei fæ ég nóg af því.

Einu sinni átti ég kú.
Einu sinni átti ég kú.
Hún sagði ekki mö, heldur bú bú bú
já býsna skrýtin var kýrin sú.

Ég átti hrút og hann var grár.
Ég átti hrút og hann var grár.
Svo skipt´ann um lit og eftir ár
hann orðinn var næstum því fjólublár

Ég átti hund sem oft svaf fast.
Ég átti hund sem oft svaf fast.
Og þegar rigndi og það var hvasst,
þá fékk hann alltaf gigtarkast.

Ég átti fugl sem í búri bjó.
Ég átti fugl sem í búri bjó.
Hann aldrei söng, jafnvel ekki þó
að undir væri leikið á píanó.

Ég átti kött sem var klókur og vís.
Ég átti kött sem var klókur og vís.
Hann var andvígur því að eltast við mýs,
en át bara kökur og rjómaís.


Nú skal syngja um....


Nú skal syngja um kýrnar
sem baula hátt í kór,
þær gefa okkur mjólkina
svo öll við verðum stór.
Mjólk, mjólk, mjólk, mjólk, mjólk.
Mu mu mu.....

Nú skal syngja um hænsnin
sem gagga endalaust.
Þau gefa okkur eggin
svo öll við verðum hraust.
Egg egg egg...
Ga ga ga....

Nú skal syngja um lömbin
sem jarma sætt og blítt.
Þau gefa okkur ullina
svo okkur verði hlýtt.
Ull ull ull....
Me me me....


Fimm litlir apar


Fimm litlir apar sátu upp í tré.
Þeir voru að stríða krókódíl;
"Þú nærð ekki mér!"
Þá kom hann herra krókódíll,
hægt og rólega og HAMM !!!

Fjórir litlir apar ....... ( og svo frv.)


Komdu kisa mín

Komdu, kisa mín,
kló er falleg þín
og grátt þitt gamla trýn.
Mikið malar þú,
mér það líkar nú,
víst ertu vænsta hjú.
Banar margri mús,
mitt þú friðar hús.
Ekki er í þér lús,
oft þú spilar brús.
Undrasniðug, létt og liðug
leikur bæði snör og fús.
Við skulum drekka dús.


Köngulóin

Það var eitt sinn könguló sem hafði átta fætur.
Því þurfti hún að fara snemma - á átta fætur
og fara í skóna - og reima skóna - á átta fætur.
Hún taldi: 1-2-3-4-5-6-7- átta fætur.
Tralla ralla
Umm hmm hmm hmm (2 x )


Bjarnastaðarbeljurnar

Bjarnarstaðarbeljurnar þær baula mikið núna,
þær eru að verða vitlausar, það vantar eina kúna.
Það gerir ekkert til, það gerir ekkert til,
þær koma um miðaftanbil.


Fiskarnir tveir

Nú skulum við syngja um fiskana tvo
sem ævi vína enduðu í netinu svo.
Þeir syntu og syntu og syntu um allt
en mamma þeirra sagði: Vatnið er kalt!
Baba, búbú, baba, bú!
Baba, búbú, baba, bú!
Þeir syntu og syntu og syntu um allt
en mamma þeirra sagði: Vatnið er kalt!

Annar hét Gunnar en hinn hét Geir,
þeir voru pínulitlir báðir tveir.
Þeir syntu og syntu og syntu um allt
en mamma þeirra sagði: Vatnið er kalt!
Baba, búbú, baba, bú!
Baba, búbú, baba, bú!
Þeir syntu og syntu og syntu um allt
en mamma þeirra sagði: Vatnið er kalt!


Minn er hestur, grænn og grár,
gulur, ljós og skjóttur.
Rauður, jarpur, brúnn og blár,
bleikur og litföróttur.
                                                   (Lag: Afi minn og amma mín)

Krummi krunkar úti

Krummi krunkar úti, kallar á nafna sinn:
"Ég fann höfuðið á hrúti, hrygg og gæruskinn.
:,: Komdu nú og og kroppaðu með mér,
krummi nafni minn" :,:


Snati og Óli

Heyrðu snöggvast, Snati minn,
snjalli vinur kæri,
heldurðu ekki að hringinn þinn
ég hermannlega bæri?

Lof mér nú að leika að
látúnshálsgörð þinni;
ég skal seinna jafna það
með jólaköku minni.

Jæja þá, í þetta sinn
þér er heimil ólin.
En hvenær koma, kæri minn,
kakan þín og jólin?


Apalagið

Það var einu sinni api
í ofsa góðu skapi.
Hann ætlaði að fá sér epli
en fékk sér banana.
Bananana, klikk klikk,
bananana, klikk klikk,
bananana bananana bananana, klikk klikk.
                                                                        (Lag: Adams family)

Kisa mín

Kisa mín, kisa mín,
kisa litla grætur.
Veistu um, veistu um
vetrarmyrku nætur?

Litli grís, litli grís,
leggstu hér á feldinn.
Sé þér kalt, sé þér kalt,
settu sprek á eldinn.

Góða kýr, góða kýr,
gáfuleg um auga.
Bítur gras, bítur gras,
býr til skrýtna hauga.

Kisa mín, kisa mín,
kúrir sig og malar.
Músasteik, músasteik,
malar um - og hjalar.


Kalli litli könguló

Kalli litli könguló klifraði upp á múr,
Kalli litli könguló klifraði upp á múr.
Þá kom rigning og Kalli litli datt!
Svo kom sólin og þerraði hans kropp.
Og Kalli litli könguló klifraði upp á topp.


Ef að sérðu krókódíl

Ef að sérðu krókódíl í þínu baðkeri,
vertu ekki við hann hræddur sýndu hugrekki,
og bjóddu honum inn í stofu þar að snæðingi.

Ef að situr stærðar górilla í geymslunni,
skaltu taka því með ró, þú veist af reynslunni
að ef hún fær tvo banana hún sýnir kurteisi.

Ef að liggur stærðar ljón á þínu skrifborði,
skaltu ekki kalla á mömmu þína í ofboði,
heldur klappa því á bakið svo það steinsofni.


Ég er rauður lítill héri

 
Ég er rauður lítill héri
og sjáið hvað ég geri.
Ég hoppa og skoppa
og sný mér í hring.
Og svo kann ég að klappa
og fótunum að stappa
og svo kann ég að telja
og einn og tveir og þrír.
                                                 (Lag: Í leikskóla er gaman)

Kisutangó

Mín kisa á vökul eyru
og veiðihár og rófu
og viðkvæmt lítið trýni
hún sleikir oft og þvær.
Hún unir sér við leiki
og aldrei sýnir klær
og engin kisa í heimi
á svo fimar tær.

Mín kisa dansar tangó,
tangó, tangó,
hún teigir sig og reygir
og er svo fött og brött.
Mín kisa dansar tangó, tangó, tangó,
ég trúað gæti að margir
vildu eiga slíkan kött tra la la la la.


Fiskalag

Svo margir fiskar í sjónum búa
þar sjá má aldeilis aragrúa af þeim
þar eru ýsur og rauðir karfar
ufsi og þorskur og silfursíld.

Þar búa ógnvaldar hafsins djúpa
stórir hvalir og grimmir hákarlar
en litlu fiskarnir gæta að sér
og láta alls ekki góma sig

Og skipin sigla um hafið bláa
þau veiða fiskinn og fær´ann upp á land
þar hraustir krakkar hann kátir smakka
og bæta á kúfaðan diskinn sinn.

Svo margir fiskar í sjónum búa
þar sjá má aldeilis aragrúa af þeim
þar eru ýsur og rauðir karfar
ufsi og þorskur og silfursíld.
                                                  (Lag: litlir kassar)

Krumminn á skjánum

Krumminn á skjánum kallar hann inn:
"Gef mér bita af borði þínu, bóndi minn."
Bóndinn svarar býsna reiður:
"Burtu farðu, krummi leiður.
Líst mér að þér lítill heiður.
Ljótur ertu á tánum,
krumminn á skjánum."


Heimsókn í dýragarðinn


Ég fór í dýragarð í gær og gettu hvað ég sá?
F F F F fílinn þar ég sá!

Ég fór í dýragarð í gær og gettu hvað ég sá?
T T T T tígrisdýr ég sá!

Ég fór í dýragarð í gær og gettu hvað ég sá?
K K K K kengúru ég sá!

Bætið við eftir því sem "löngun liggur" !


Ég er mús

Ég er mús eins og allir sjá,
lík er pabba og mömmu sem ég á.
Ostur besta sem ég veit
enda er ég soldið feit.
Sona er að vera mús
og kunna ekki að drekka úr krús
en mig langar svo oft í djús.
Ég heiti;
Mýsla tísla, tása, túsla (x3)
þetta heiti ég.
                                                (Lag: Þegar barnið í föt sín fer)


Kvæðið um fuglana

 
Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar Guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.

Úr furutré sem fann ég út við sjó
ég fugla skar og líka´ úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.

Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sameinar með töfrum loft og jörð.

Ég heyri´ í fjaska villtan vængjaþyt.
um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína, himinborna dís,
og hlustið, engar Guðs í Paradís.


Sex litlar endur

Sex litlar endur þekki ég,
fimm eru mjóar og ein er sver.
Ein þeirra vappar og sperrir stél.
fremst í flokki og segir kvakk, kvakk, kvakk.

Niður að sjónum vilja þær,
vappe vippe vappe vippe til og frá.
Ein þeirra vappar og sperrir stél,
fremst í flokki og segir kvakk, kvakk, kvakk.


Litlu andarungarnir

Litlu andarungarnir
allir synda vel, allir synda vel
höfuð hneigja í djúpið og hreyfa lítil stél,
höfuð hneigja í djúpið og hreyfa lítil stél.

Litlu andarungarnir
ætla út á haf, ætla út á haf
fyrst í fjarlægð skima og fara svo í kaf,
fyrst í fjarlægð skima og fara svo í kaf.


Bangsimon

Sit ég hér á grænni grein
og geri fátt eitt annað,
en éta hunang, borða ber
því bíta, allt er bannað.

Dropar detta stórir hér,
dropar detta, hvað finnst þér?
Dropar detta allt um kring
og dinga linga ling.

Vatnið vex nú ótt og ótt
ég verð að flýja´ úr húsum.
Hér sit ég í alla nótt
og borða úr mínum krúsum.

Dropar detta ofan í poll
dropar detta á minn koll.
Dropar detta allt um kring,
og dinga, linga, ling.


Óli í tungu


Óli í Tungu
Óli í Tungu átti myndar bú,
konu og marga krakka,
kindur, hænsni og rakka,
en hann hafði
en hann hafði
ekki nokkurt hjú.

Óli í Tungu
Óli í Tungu
átti geitur þrjár,
Snoppa, Gibba og Grána
gengu yfir ána,
Snati eltir,
Snati eltir,
sá er fótafrár.

Óli í Tungu
Óli í Tungu
átti skjótan hest,
hann var nefndur Hlini
í höfuðið á konungssyni
að hann meiddist
að hann meiddist
Óla þótti verst.

Óli í Tungu
Óli í Tungu
fór í ferðalag
yfir litla lækinn
lengi skyldurækinn,
björg að sækja,
björg að sækja,
í búið fyrir dag.

Óli í Tungu
Óli í Tungu
engið græna sló,
konan rösk að raka,
rökin krakkar taka
heyið láta 
heyið láta
heim í litla þró.

Óli í Tungu
Óli í Tungu
átti hvíldardag.
Töðugjöldin gleðja,
góðar lummur seðja,
allir syngja
allir syngja
um Óla og Tungu brag.

Óli í Tungu
Óli í Tungu
búi sínu bjó,
sæll og sigurglaður
sjálfur heiðursmaður
úti í varpa
úti í varpa
í yndi vors og ró.


Það er munur að vera hvalur

Það er munur að vera hvalur
og geta siglt um sjóinn eins og skip,
eins og skip, eins og skip, eins og skip.
Ég er stærsti hvalur í heimi
og ég syndi um með merkilegan svip,
merkissvip, merkissvip, merkissvip.

Alla fiska sem ég finn
hvar sem er í hafinu.
Alla fiska sem ég finn
hvar sem er í hafinu
borða ég munninum.

Ýsur og lýsur,
hámerar og vogmerar,
skrápflúrur og kollúrur,
þyrsklinga og bristlinga,
hina snúandi og smjúgandi,
dansandi og glansandi, ála, ála.

Alla fiska sem ég finn
hvar sem er í hafinu.
Alla fiska sem ég finn
hvar sem er í hafinu
borða ég munninum.


Þorskarnir þrír

Nú skulum við syngja um þorskana þrjá,
sem á þriðjudaginn lentu fisksala hjá.
Þeir syntu og syntu og syntu um höfin blá
og síðast þeir lentu diskinum á.

Ba, ba, bú, bú, ba, ba, bú!
Ba, ba, bú, bú, ba, ba, bú!
Þeir syntu og syntu og syntu um höfin blá
og síðast þeir lentu diskinum á.