Jólasöngur
Sæl og blessuð börnin góð
svakalega er gaman.
Að sjá ykkur svo sæl og rjóð
og sæt og hrein í framan.
Viðlag:
Yndisleg jólin
þau eru engu lík,
enda eru börnin svo góð í Keflavík
enda eru börnin svo góð í Keflavík
Já, komið nú og kveðið með
krakkar nú er gaman.
Já, göngum kringum grenitréð
og gleðjumst öll hér saman.
Viðlag: Yndisleg jólin
Í Keflavík er allt svo bjart
þó ekki skíni sólin,
er búast í sitt besta skart
börnin yfir jólin
Viðlag: Yndislega jólin
Ósköp er það erfið törn
að arka um hálfan hnöttinn.
En ekki mega fleiri börn
fara í jólaköttinn.
Viðlag: Yndisleg jólin
Lag: Krakkar mínir komið þið sæl
Fimm mínútur í jól
Er brúða eða bíll,
bók eða lest,
þekkir einhver hér þennan jólagest
sem læðist um með sekk
lætur oní skó,
meðan lítil börnin sofa vært í ró.
Hvíldu höfuð hljótt.
Hlustaðu það kemur senn jólanótt.
Úti er snjór, úti er kalt,
úti hljóma jólabjöllur yfir allt.
Er brúða eða bíll ..... o.s.frv.
Aðventan
Við kveikjum einu kerti á.
Hans koma nálgast fer,
sem fyrstu jól í jötu lá
og Jesúsbarnið er.
Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans.
Því Drottinn sjálfur soninn þá
mun senda í líking manns.
Við kveikjum þremur kertum á,
því konungs beðið er,
þótt Jesús sjálfur jötu
og strá á jólum kysi sér.
Við kveikjum fjórum kertum á,
brátt kemur gesturinn
og allar þjóðir þurfa að sjá
að það er frelsarinn.
Jóla - rokk
Brauð og kökur mamma er að baka endalaust,
bograndi við maskínuna syngur hún við raust,
sé hún ekki að baka þá er þveginn þvotturinn.
Það er nóg af hreinlætinu, segir pabbi minn.
Þannig gengur þetta alltaf
þegar nálgast jól,
heilög jól.
Ég er bara ofurlítið ananóruskinn,
alltaf hreint að kvelja og pína litla bróður minn
þversum fyrir hunda og manna fótum flækist ég
flestum held ég þyki lítið skemmtileg.
Þannig gengur þetta alltaf
þegar nálgast jól,
heilög jól.
Ef hún mamma ekki myndi baka endalaust,
ekki þvo og sjaldan láta glymja sína raust,
þá myndi eitthvað vanta held ég víst í heimi hér,
venjulega þó að hennar amstur leiðist mér.
Þannig á þetta víst að ganga
þegar nálgast jól,
heilög jól.
Venjulega er skemmtilegast allt sem ekki má,
alltaf er það brothætt sem mig langar til að fá.
Alveg held ég sumir geti grenjað endalaust,
garmurinn hann litli bróðir hefur svona raust.
Þannig gengur þetta alltaf
þegar nálgast jól,
heilög jól.
Gekk ég yfir sjó og land
Gekk ég yfir sjó og land
Og hitti þar einn gamlan mann.
spurði hann og sagði svo:
Hvar áttu heima?
Ég á heima á Klapplandi, Klapplandi,
Klapplandi.
Ég á heima á Klapplandi,
Klapplandinu góða.
Síðan kemur
Stapplandi, Grátlandi, Hlælandi og Íslandi
Jólasveinar einn og átta
Jólasveinar einn og átta
ofan komu úr fjöllunum.
Í fyrrakvöld þeir fóru að hátta,
fundu´ann Jón á Völlunum.
Andrés stóð þar utan gátta,
það átti að færa´ann tröllunum.
Þá var hringt í Hólakirkju
öllum jólabjöllunum.
Ég sá mömmu kyssa jólasvein
Ég sá mömmu kyssa jólasvein,
við jólatréð í stofunni í gær.
Ég læddist létt á tá
til að líta gjafir á,
hún hélt ég væri steinsofandi
Stínu dúkku hjá.
Og ég sá mömmu kitla jólasvein
og jólasveinnin út um skeggið hlær.
Já sá hefði hlegið með
hann pabbi minn hefð'ann séð
mömmu kyssa jólasvein í gær.
Litla jólabarn
Jólaklukkur klingja,
kalda vetrarnótt.
Börnin sálma syngja
sætt og ofurhljótt.
Englaraddir óma
yfir freðna jörð.
Jólaljósin ljóma
lýsa upp myrkan svörð.
Litla jólabarn, litla jólabarn
ljómi þinn stafar geislum
um ís og hjarn.
Indæl ásýnd þín
yfir heimi skín,
litla saklausa jólabarn.
Ljúft við vöggu lága
lofum við þig nú.
Undrið ofursmáa
eflir von og trú.
Veikt og vesælt alið
varnarlaust og smátt,
en fjöregg er þér falið
framtíð heims þú átt.
Litla jólabarn.........
Er þú hlærð og hjalar,
hrærist sála mín.
Helga tungu tala
tærblá augu þín.
Litla brosið bjarta
boðskap flytur enn.
Sigrar myrkrið svarta
sættir alla menn.
Litla jólabarn...........
Þyrnirós
Hún Þyrnirós var besta barn,
besta barn, besta barn.
Hún Þyrnirós var besta barn,
besta barn.
Þá kom þar galdrakerling inn,
kerling inn, kerling inn.
Þá kom þar galdrakerling inn,
kerling inn.
"Á snældu skaltu stinga þig,
stinga þig, stinga þig.
Á snældu skaltu stinga þig,
stinga þig.
Og þú skalt sofa´ í heila öld,
heila öld, heila öld.
Og þú skalt sofa´ í heila öld,
heila öld."
Hún Þyrnirós svaf heila öld,
heila öld, heila öld.
Hún Þyrnirós svaf heila öld,
heila öld.
Og þyrnigerðið hóf sig hátt,
hóf sig hátt, hóf sig hátt.
Og þyrnigerðið hóf sig hátt,
hóf sig hátt.
Þá kom hinn ungi konungsson,
konungsson, konungsson.
Þá kom hinn ungi konungsson,
konungsson.
"Ó, vakna þú mín Þyrnirós,
Þyrnirós, Þyrnirós.
Ó, vakna þú mín Þyrnirós,
Þyrnirós."
Og þá varð kátt í höllinni,
höllinni, höllinni.
Og þá var kátt í höllinni,
höllinni.
Babbi segir
Babbi segir, babbi segir:
"Bráðum koma dýrleg jól."
Mamma segir, mamma segir:
"Magga fær þá nýjan kjól."
Hæ, hæ, ég hlakka til,
hann að fá og gjafirnar.
Bjart ljós og barnaspil,
borða sætu lummurnar.
Mamma segir, mamma segir:
"Magga litla ef verður góð,
henni gef ég, henni gef ég
haus á snoturt brúðufljóð."
Hæ, hæ, ég hlakka til,
hugnæm verður brúðan fín.
Hæ, hæ, ég hlakka til,
himnesk verða jólin mín.
Nú ég hátta, nú ég hátta
niður í, babbi, rúmið þitt,
ekkert þrátta, ekkert þrátta,
allt les "Faðirvorið" mitt.
Bíaðu, mamma, mér,
mild og góð er höndin þín,
góða nótt gefi þér
Guð, sem býr til jólin mín.
Adam átti syni sjö
Adam átti syni sjö,
sjö syni átti Adam.
Adam elskaði alla þá
og allir elskuðu Adam.
Hann sáði, hann sáði,
hann klappaði saman lófunum,
stappaði niður fótunum,
ruggaði sér í lendunum
og sneri sér í hring.
Jólasveinar ganga um gólf
Jólasveinar ganga um gólf
með gildan staf í hendi,
móðir þeirra sópar gólf
og flengir þá með vendi.
:,:Uppi' á hól stend ég og kanna,
níu nóttum fyrir jól
þá kem ég til manna.:,:
Jólasveinar ganga um gátt
með gildan staf í hendi.
Móðir þeirra hrín við hátt
og hýðir þá með vendi.
:,:Uppi' á hól stend ég og kanna,
níu nóttum fyrir jól
þá kem ég til manna.:,:
Í skóginum stóð kofi einn
Í skóginum stóð kofi einn,
sat við gluggann jólasveinn.
Þá kom lítið héraskinn
sem vildi komast inn.
"Jólasveinn, ég treysti á þig,
veiðimaður skýtur mig!"
"Komdu litla héraskinn,
því ég er vinur þinn."
En veiðimaður kofann fann,
jólasveinninn spurði hann
hefur þú séð héraskinn
hlaupa' um hagann þinn?
Hér er ekkert héraskott,
hypja þú þig héðan á brott.
Og veiðimaður burtu gekk,
og engan héra fékk.
Göngum við í kringum
Göngum við í kringum einiberjarunn,
einiberjarunn, einiberjarunn.
Göngum við í kringum einiberjarunn,
snemma á mánudagsmorgni.
Svona gerum við er við þvoum okkar þvott,
þvoum okkar þvott, þvoum okkar þvott,
svona gerum við þegar við þvoum okkar þvott,
snemma á mánudagsmorgni.
Snemma á þriðjudagsmorgni: Vindum okkar þvott
Snemma á miðvikudagsmorgni: Hengjum okkar þvott
Snemma á fimmtudagsmorgni: Teygjum okkar þvott
Snemma á föstudagsmorgni: Straujum okkar þvott
Snemma á laugardagsmorgni: Skúrum okkar gólf
Snemma á sunnudagsmorgni: Greiðum okkar hár
Seint á sunnudagsmorgni: Göngum kirkjugólf
Nú skal segja
Nú skal segja, nú skal segja
hvernig litlar stúlkur gera:
Vagga brúðu, vagga brúðu
og svo snúa þær sér í hring.
Nú skal segja, nú skal segja
hvernig litlir drengir gera:
Sparka bolta, sparka bolta
og svo snúa þeir sér í hring.
Nú skal segja, nú skal segja
hvernig ungar stúlkur gera:
Þær sig hneigja, þær sig hneigja
og svo snúa þær sér í hring.
Nú skal segja, nú skal segja
hvernig ungir piltar gera:
Taka ofan, taka ofan
og svo snúa þeir sér í hring.
Nú skal segja, nú skal segja
hvernig gamlar konur gera:
Prjóna sokka, prjóna sokka
og svo snúa þær sér í hring.
Nú skal segja, nú skal segja
hvernig gamlir karlar gera:
Taka í nefið, taka í nefið
og svo snúa þeir sér í hring.
Aattssjúu!!!
Nú er Gunna á nýju skónum
Nú er Gunna á nýju skónum,
nú eru að koma jól.
Siggi er á síðum buxum,
Solla á bláum kjól.
Mamma er enn í eldhúsinu
eitthvað að fást við mat.
Indæla steik hún er að færa
upp á stærðar fat.
Pabbi enn í ógnarbasli
á með flibbann sinn.
"Fljótur, Siggi, finndu snöggvast
flibbahnappinn minn".
Kisu er eitthvað órótt líka,
út fer brokkandi.
Ilmurinn úr eldhúsinu
er svo lokkandi.
Á borðinu ótal bögglar standa,
bannað að gægjast í.
Kæru vinir, ósköp erfitt ,
er að hlýða því.
Jólatréð í stofu stendur,
stjörnuna glampar á.
Kertin standa á grænum greinum,
gul og rauð og blá.
Loksins hringja kirkjuklukkur,
kvöldsins helgi inn.
á aftansöng í útvarpinu,
allir hlusta um sinn.
Mamma ber nú mat á borð
og mjallahvítan dúk,
hún hefur líka sett upp svuntu,
sem er hvít og mjúk.
Nú er komin stóra stundin,
staðið borðum frá,
nú á að fara að kveikja á kertum,
kætast börnin smá.
Ungir og gamlir ganga kringum,
græna jólatréð.
dansa og syngja kátir krakkar,
kisu langar með.
Leikföng glitra, ljósin titra,
ljómar stofan öll,
klukkur hringja, krakkar syngja
kvæði og lögin snjöll.
Stelpurnar fá stórar brúður,
strákurinn skíðin hál,
konan brjóstnál, karlinn vindla,
kisa mjólkurskál.
Síðan eftir söng og gleði
sofna allir rótt,
það er venja að láta ljósin
loga á jólanótt.
Heims um ból
Heims um ból, helg eru jól,
signuð mær son Guðs ól,
frelsun mannanna, frelsisins lind,
frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind
:,:meinvill í myrkrunum lá.:,:
Heimi í hátíð er ný,
himneskt ljós lýsir ský,
liggur í jötunni lávarður heims,
lifandi brunnur hins andlega seims,
:,:konungur lífs vors og ljóss.:,:
Heyra má himnum í frá
englasöng: Allelúja.
Friður á jörðu því faðirinn er
fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér
:,:samastað syninum hjá.:,:
Þá nýfæddur Jesús
Þá nýfæddur Jesús í jötunni lá
á jólunum fyrstu var dýrðlegt að sjá,
þá sveimuðu englar frá himninum hans
því hann var nú fæddur í líkingu manns.
Þeir sungu "halelúja" með hátíðarbrag,
"nú hlotnast guðsbörnunum friður í dag",
og fagnandi hirðarnir fengu að sjá
hvar frelsarinn okkar í jötunni lá.
Ég bið þig, ó Drottinn, að dvelja mér hjá,
að dýrðina þína ég fái að sjá,
ó blessa þú, Jesú, öll börnin þín hér,
að búa þau fái á himnum með þér.
Bráðum koma blessuð jólin
Bráðum koma blessuð jólin
börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt
í það minnsta kerti´ og spil.
Hvað það verður veit nú enginn,
vandi er um slíkt að spá.
En eitt er víst að alltaf verður
ákaflega gaman þá.
Máske þú fáir menn úr tini,
máske líka þetta kver.
Við skulum bíða og sjá hvað setur
seinna vitnast hvernig fer.
En ef þú skyldir eignast kverið,
ætlar það að biðja þig
að fletta hægt og fara alltaf
fjarskalega vel með sig.
Það á að gefa börnum brauð
Það á að gefa börnum brauð
að bíta í á jólunum,
kertaljós og klæðin rauð,
svo komist þau úr bólunum,.
Væna flís af feitum sauð,
sem fjalla gekk á hólunum.
Nú er hún gamla Grýla dauð,
gafst hún upp á rólunum.
Skín í rauðar skotthúfur
Skín í rauðar skotthúfur
skuggalangan daginn,
jólasveinar sækja að
sjást um allan bæinn.
Ljúf í gleði leika sér
lítil börn, í desember,
inni' í friði' og ró, úti' í frosti' og snjó
því að brátt koma björtu jólin,
bráðum koma jólin.
Uppi' á lofti, inni' í skáp
eru jólapakkar.
Titra öll af tilhlökkun
tindilfættir krakkar.
Komi jólakötturinn
kemst hann ekki' í bæinn inn,
inn í frið og ró, inn úr frosti' og snjó,
því að brátt koma björtu jólin,
bráðum koma jólin.
Stjörnur tindra stillt og rótt,
stafa geislum björtum.
Norðurljósin loga skær,
leika á himni svörtum.
Jólahátíð höldum vér
hýr og glöð í desember
þó að feyki snjó þá í friði' og ró
við höldum heilög jólin
heilög blessuð jólin.
Jólasveinninn minn
Jólasveinninn minn, jólasveinninn minn
ætlar að koma í dag
með poka af gjöfum og segja sögur
og syngja jólalag.
Það verður gaman þegar hann kemur
þá svo hátíðlegt er.
Jólasveinninn minn, káti karlinn minn
kemur með jólin með sér.
Jólasveinninn minn, jólasveinninn minn
ætlar að koma í kvöld.
Ofan af fjöllum með ærslum og köllum
hann arkar um holtin köld.
Hann er svo góður og blíður við börnin,
bæði fátæk og rík.
Enginn lendir í jólakettinum,
allir fá nýja flík.
Jólasveinninn minn, jólasveinninn minn
arkar um holtin köld,
af því að litla jólabarnið
á afmæli í kvöld.
Ró í hjarta, frið og fögnuð
flestir öðlast þá.
Jólasveinninn minn, komdu karlinn minn,
kætast þá börnin smá.
Á jólunum er gleði og gaman
Á jólunum er gleði og gaman,
fúm, fúm, fúm
Þá koma allir krakkar með
í kringum jólatréð.
Þá mun ríkja gleði og gaman,
allir hlæja og syngja saman
fúm, fúm, fúm!
Og jólasveinn með sekk á baki
fúm, fúm, fúm
hann gægist inn um gættina
á góðu krakkana.
Þá mun ríkja gleði og gaman,
allir hlæja og syngja saman
fúm, fúm, fúm!
Á jólunum er gleði og gaman
fúm, fúm, fúm
Þá klingja allar klukkur við
og kalla á gleði og frið.
Þá mun ríkja gleði og gaman,
allir hlæja og syngja saman
fúm, fúm, fúm!
Boðskapur Lúkasar
Forðum í bænum Betlehem
var borinn sá sem er
sonur guðs sem sorg og þraut
og syndir manna ber
Viðlag:
,;Hlustið englar himnum af
þeim herra greina frá
sem lagður var í
lágan stall, en lýsir jörðu á;,
Hirðum sem vöktu heiðum á
og hjarða gættu um nótt
englar gleði fluttu fregn
um frelsun allri drótt
Viðlag
Vitringum lýsti langan veg
sú leiðarstjarna hrein
sem ljóma heimi breyskum ber
og bætir hölda mein
Viðlag