Leikskólinn Heiðarsel tók til starfa 8. október 1990. Alls dvelja 77 börn í skólanum á aldrinum tveggja til sex ára, boðið er upp á sveigjanlegan vistunartíma, hægt er að velja um 4,5,6,7,8 eða 8,5 tíma vistun. Leikskólinn er þriggja deilda. Deildirnar heita Bakki, Hóll og Brekka. Í skólanum er mötuneyti og boðið er upp á morgunmat, hádegisverð og síðdegishressingu. Leikskólinn er opinn frá klukkan 7:45-16:15. Leikskólastjóri er Kolbrún Sigurðardóttir. Aðstoðarleikskólastjóri er Ólöf Kristín Guðmundsdóttir.
Leikskólinn Heiðarsel
Heiðarbraut 27
230 Reykjanesbæ
Sími: 420-3130
Netfang: heidarsel@reykjanesbaer.is