Þeir foreldrar sem óska eftir að fá niðurgreiðslu á leikskólagjöldum þurfa að sækja um það á þar til gerðu eyðublaði hjá leikskólafulltrúa á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. Til að greiða lægra gjald þarf að framvísa vottorði Tryggingastofnunar um greiðslu mæðra/feðralauna. Þeir námsmenn sem óska eftir að fá niðurgreiðslu þurfa að skila vottorði frá viðkomandi skóla. Breytingin kemur til framkvæmda 1. næsta mánaðar eftir samþykkt umsóknar. Endurnýja þarf umsóknina fyrir 1. september ár hvert.