Vistgjöld eru greidd fyrirfram, fyrir einn mánuð í senn og gjald lækkar ekki þó barn sé fjarverandi. Foreldrar geta valið um að greiða þau með greiðslukorti eða í gegnum greiðsluþjónustu bankanna. Hægt er að greiða með gíróseðli ef nauðsyn krefur en stefna Reykjanesbæjar er að halda því greiðsluformi í lágmarki til að forðast vanskil. Veittur er systkinaafsláttur ef fleiri en eitt barn úr sömu fjölskyldu dvelja í leikskóla, fyrir fyrsta barn er greitt 100%, annað barn 50% og fyrir þriðja barn er frítt. Skuldi foreldrar þrjá mánuði eða meira eiga þeir á hættu að barnið missi plássið. Uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við 1. hvers mánaðar, sama gildir um vistunartímabreytingar. Uppsagnir og breytingar á dvalarsamningi fara fram hjá leikskólastjóra.